Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-
Islendsk Urtagards Bok : Søfnud og samannteken Bændum og Alþydu aa Islande til reynslu og nota
Árið 1770 skrifaði Ólafur Ólafsson Olavius (1741?-1788) bók um hvernig ætti að rækta grænmeti, ætlaða bændum og alþýðufólki. Ólafur fæddist á Eyri í Seyðisfirði í Norður-Ísafjarðarsýslu. Hann nam við Skálholtsskóla og fór svo í læknisnám hjá Bjarna Pálssyni landlækni. Þaðan lá leið Olaviusar til Kaupmannahafnar þar sem hann lauk bakkalárgráðu í heimspeki. Ólafur var á…
-
Fyrsta símaskráin 1905. Útgefandi Talsímahlutafélag Reykjavíkur.
Talsímahlutafélag Reykjavíkur var stofnað 1904 og voru notendur 20 talsins í mars 1905 þegar símstöð var opnuð, en þegar skráin var gefin út í ágúst voru númer orðin alls 145. Í janúar 1906 kom svo út viðbót og þá eru númerin orðin 173. Landssíminn var stofnaður 1906 og 1907 kom út fyrsta skráin fyrir allt…
-
Íslensk sagnablöð
Hið íslenska bókmenntafélag gaf út tímaritið Íslensk sagnablöð frá árinu 1817 til ársins 1826. Tvö bindi komu út og skiptust þau í tíu deildir. Ein deild fyrir hvert ár. Fyrsti árgangurinn kom út í 300 eintökum og var dreift ókeypis til félagsmanna. Finnur Magnússon, prófessor í Kaupmannahöfn og formaður félagsins, samdi allar fréttir; bæði innlendar…
-
Theodóra Thoroddsen: Þulur
Þulur Theódóru Thoroddsen (1. júlí 1863 – 23. febr. 1954) komu fyrst út árið 1916, fyrir réttum 100 árum. Þulur eru lausbundinn bragarháttur án skiptinga í erindi og oft með ruglingslegum söguþræði. Í gegnum aldirnar hafa þulur gengið mann frá manni og blönduðust oft nýjum þulum. Fyrstu þulur Theodóru komu út í Skírni 1914 og fylgdi hún…
-
Rjúpuhreiður Ásthildar Guðmundsdóttur og teikningar Muggs
Lestrarfélag kvenna var starfrækt í Reykjavík á árunum 1911–1961 og rak Lesstofu kvenna og Lesstofu barna. Félagsritið Mánaðarrit hóf göngu sína árið 1912. Í einu hefti þess, skrifað í febrúar 1916, er saga eftir Ásthildi Guðmundsdóttur (1857–1938) sem ber heitið „Rjúpuhreiðrið“. Sögunni fylgja tvær teikningar eftir son hennar, Mugg (Guðmund Thorsteinsson) (1891–1924). „Rjúpuhreiðrið“ er endurminning Ásthildar…
-
Guðbrandsbiblía
Guðbrandsbiblía er fyrsta íslenska þýðingin á biblíunni. Guðbrandur Þorláksson biskup á Hólum lauk við þýðinguna árið 1584 og notaði hann eldri þýðingar við verkið að svo miklu leyti sem til voru. Sagt er að sjö manns hafi unnið við prentun bókarinnar og það hafi tekið þá tvö ár að prenta 500 eintök. Bókin var dýr…
-
Þjóðsagnaspil Ástu Sigurðardóttur
Ásta Sigurðardóttir mun hafa gert þessar teikningar að mannspilunum í anda þjóðsagna á árunum 1960-63. Hún hafði mikinn hug á að láta prenta þau, en af því varð ekki. Teikningarnar eru litaðar með vatnslitum. Um mitt spil er nokkuð breiður skábekkur og er annar helmingurinn hvítur en hinn svartur. Milli helminganna er hringflötur og á…
-
Um Úrnat
eftir Björk Guðmundsdóttur Björk Guðmundsdóttir gaf á eigin vegum út ævintýrið Um Úrnat sem var fjölritað á vatnslitapappír í takmörkuðu upplagi árið 1984. Kverið er 16 síður með handskrifuðum texta og teikningum eftir Björk sem hún hefur litað með vatnslitum og vaxlitum. Sjálf segist Björk hafa verið að reyna að safna pening fyrir húsaleigu með…
-

Hvað er í blýhólknum?
Svava Jakobsdóttir (1930-2004) sagði í viðtali við Þjóðviljann 27. júní 1974: „Ætli ég sé ekki fædd rauðsokka? Það má segja, að það hafi verið mitt fyrsta baráttumál í lífinu að verða tekin gild enda þótt ég væri stelpa!“ Í verkum sínum tók hún jafnan fyrir stöðu konunnar og misrétti kynjanna. Fyrsta leikrit Svövu, Hvað er…
-
Spánverjavígin 1615
„Sönn frásaga af spanskra manna skipbrotum og slagi“ eftir Jón Guðmundsson lærða er varðveitt í níu handritum á handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Þar segir af Spánverjavígunum 1615. Ekkert handritanna er frá 17. öld og telur Jónas Kristjánsson að eiginhandarritið muni hafa glatast í brunanum í Kaupmannahöfn 1728, því Árni Magnússon hafi fengið árið 1699…
-
Ferðabók Eggerts og Bjarna
Árið 1752 fengu þeir Eggert Ólafsson (1726-1768) og Bjarni Pálsson (1719-1779) sérstakan styrk frá danska ríkinu til að ferðast um Ísland í fimm ár og rannsaka náttúru þess, skrásetja aðstæður íbúanna ásamt því að koma með tillögur um hvað hægt væri að gera til að bæta ástandið. Niðurstöðurnar voru gefnar út á dönsku 1772, þýsku…
-
Konur fagna kosningarétti
7. júlí 1915 kom Alþingi saman í fyrsta sinn eftir að konungur hafði staðfest með undirskrift sinni nýja stjórnarskrártillögu frá Alþingi sem færði íslenskum konum og vinnumönnum, 40 ára og eldri, kosningarétt. Forystukonur kvenfélaganna í Reykjavík ákváðu að koma saman á Austurvelli og færa þingi og konungi þakkir fyrir réttindin og gera sér glaðan dag.…