Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-
Úr ættarsögu Borgarfólksins
Sú skáldsaga sem vakti fyrst athygli á Gunnari Gunnarssyni sem rithöfundi var Saga Borgarættarinnar. Sagan kom fyrst út á dönsku 1912-1914. Árið 1915 komu fyrstu tvö bindin út á íslensku og seinni tvö bindin 1918. Við 18 ára aldur flutti Gunnar Gunnarsson (1889-1975) til Danmerkur til að leggja stund á nám í lýðháskólanum í Askov…
-
Dagbækur Elku Björnsdóttur
Elka Björnsdóttir (1881-1924), verkakona í Reykjavík, hélt dagbækur á árunum 1915–1923, og eru þær einstök heimild um líf þessarar verkakonu ásamt því að vera hafsjór af fróðleik um hina ýmsu atburði sem áttu sér stað á Íslandi á þessum árum. Elka fylgdist með þjóðmálunum og hafði áhuga á jafnréttismálum og bættum kjörum verkafólks. Hún var…
-
Um Íslands adskiljanlegar náttúrur
JS 401 XI 4to. Um Íslands aðskiljanlegar náttúrurur er brot úr frægasta verki Jóns lærða Guðmundssonar (1574-1658) — Jón var, þrátt fyrir viðurnefnið, sjálflærður maður. Handritið er frumsamið, skrifað einhvern tímann á árunum 1640-1644 og í því eru margar myndir af hvölum — sumar hverjar nákvæmar eftirmyndir, en aðrar eiga meira að sækja í hugmyndaflug…
-
Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar
Þýðing Odds Gottskálkssonar (1514/1515 – 1556) á Nýja testamentinu var prentuð í Hróarskeldu árið 1540. Þetta mun vera fyrsta prentaða bók á íslensku. Oddur Gottskálksson var sonur Gottskálks „grimma“ Nikulássonar Hólabiskups, og hafði kynnst Lútherstrú á ferðum sínum í Noregi, Danmörku og Þýskalandi eftir lát föður síns 1521. 1534 eða 1535 sneri hann aftur til…
-
Prentlistin fimm hundruð ára
Hafsteinn Guðmundsson (1912-1999) var allt í senn; hönnuður, bókagerðarmaður, kennari, prentsmiðjustjóri og útgefandi. Árið 1940, meðan hann var enn sveinn hjá Ísafoldarprentsmiðju, vann hann verk sem einstætt er í íslenskri bóksögu – og þótt víðar væri leitað – þegar hann lýsti bókina Prentlistin fimm hundruð ára. Á titilsíðu bókarinnar og við upphaf hverrar ritgerðar teiknaði…
-
Drög Tryggva Magnússonar að lýðveldisskjaldarmerkinu
Í handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns er varðveitt mikið safn teikninga eftir Tryggva Magnússon. Segja má að Tryggvi hafi verið helsti teiknari þjóðarinnar á fyrri helmingi 20. aldar. Auk þess að myndskreyta bækur og tímarit teiknaði hann fornmannaspil , merki Alþingishátíðarinnar 1930, héraðamerki, fjórðungamerki, peningaseðla og póstflugsmerki þar sem landvættirnar, ættaðar úr Heimskringlu Snorra Sturlusonar,…
-
Helena Eyjólfsdóttir syngur Heims um ból
Þessi 78-snúninga hljómplata var gefin út af Íslenzkum tónum árið 1954. Á henni syngur Helena Eyjólfsdóttir tvö jólalög við undirleik Páls Ísólfssonar. Platan er hljóðrituð í mono. Upptakan varð gerð í Ríkisútvarpinu. Platan var pressuð í Noregi, hjá AS Nera í Osló. Tvö lög eru á plötunni: Heims um ból eftir Franz Gruber, texti eftir…
-
Útsýn – þýðingar á bandarískum skáldskap
Útgefendur Einar Benediktsson og Þorleifur Bjarnason. Um þessar mundir eru 150 ár frá fæðingu skáldsins Einars Benediktssonar. Árið 1892 réðist Einar í það ásamt Þorleifi H. Bjarnasyni kennara að gefa út nýtt tímarit sem þeir kölluðu Útsýn. Ritið átti að stuðla að aukinni þekkingu Íslendinga á erlendum bókmenntum og stóð til að það kæmi út…
-
Náttúrufræðirit Jóns Bjarnasonar
Handritið ÍBR 69 4to er hluti af fjölfræðisafni Jóns Bjarnasonar (1791-1861), bónda í Þórormstungu í Austur-Húnavatnssýslu sem hann tók saman um miðja nítjándu öld. Fjölfræðisafnið, sem er í níu bindum (ÍBR 67-73 4to og ÍBR 69-70 8vo), hefur að geyma ítarlegar upplýsingar um dýra- og náttúruríkið, framandi menningarheima, stjörnufræði, tækninýjungar og margt fleira sem Jón…
-
Fagurlega skreytt Snorra-Edda frá 1764
ÍB 299 4to Handritið ÍB 299 4to er skrifað árið 1764 og inniheldur margvíslegt efni, m.a. Snorra-Eddu og rúnastafróf. Það er skrifað af Jakobi Sigurðssyni (1727–1779) sem var afar fær skrifari og skreytti hann handrit sín oft með fallegum teikningum. Titilsíðan er skreytt með persónum og efni úr norrænni goðafræði. Í handritinu eru teikningar af…
-
Enskur saltari ÍB 363 8vo
Fallega skreytt brot úr enskum saltara skrifað (um 1300) á latínu á skinn. Brotið inniheldur texta úr Davíðssálmum 37.14–38.6. Efst í vinstra horni á verso-hlið blaðsins er sögumyndastafurinn D, skreyttur og brenndur í gull, sem sýnir Maríu og Jesú taka á móti vitringunum úr austri. Saltarinn hefur verið tekinn í sundur og notaður í bókband;…
-
Kveisusæringar – Lbs fragm. 14
Kveisublaðið er líklega hið eina sinnar tegundar sem varðveist hefur á Íslandi. Blaðið er skinnlengja með lesningu eða bæn gegn kveisu eða gigt og er talið að slík bænablöð hafi verið nokkuð algeng á sínum tíma, en þau voru gerð upptæk eða brennd í galdraofsóknunum á 17. öld. Lengjan var notuð sem verndargripur og var…