Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-
Býsönsk dómsdagsmynd í Flatatungu – doktorsritgerð Selmu Jónsdóttur
Selma Jónsdóttir (22. ágúst 1917 – 5. júlí 1987) var fyrsti Íslendingurinn til að ljúka prófi í listfræði og fyrsta konan sem hlaut doktorsnafnbót frá Háskóla Íslands. Árið 1944 lauk hún B.A.-prófi í listfræði frá Columbia háskóla í New York. Selma stundaði framhaldsnám við Columbia háskólann 1944–1945 og við Warburg Institute í London 1946–1948. Hún…
-
Lífshistoría, Líkræða og erfiljóð um Hólmfríði Sigurðardóttur (1617-1692)
Hólmfríður Sigurðardóttir prófastsfrú í Vatnsfirði í Ísafjarðardjúpi fæddist 9. janúar 1617 að Hróarsholti í Flóa og eru því nú liðin 400 ár frá fæðingu hennar. Líkræða sr. Geirs Markússonar yfir henni ásamt lífshistoríu og erfiljóði um hana eftir eftir sr. Jón Guðmundsson er varðveitt í handritinu Lbs 1528 8vo. Það er 65 blöð, mörg myndskreytt…
-
Hlutabréf í kvennaheimilinu Hallveigarstöðum
Kvennaheimilið Hallveigarstaðir var vígt 19. júní 1967. Það var reist til þess að vera aðsetur kvennasamtaka í landinu og til að styrkja þau í menningar- og mannúðarstarfi þeirra. Hugmyndin um kvennaheimili kviknaði skömmu eftir að konur hlutu kosningarétt 1915. Á þeim tíma starfaði fjöldi kvenfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem öll unnu að velferðarmálum og sýndi það…
-
Sigurður Ólafsson – „Svanurinn minn syngur“
Sigurður Ólafsson var fæddur í Reykjavík 4. desember 1916 og lést 13. júlí 1993. Hann var lengi einn þekktasti söngvari þjóðarinnar. Á liðlega 50 ára söngferli sínum söng hann í kórum, við jarðarfarir, með danshljómsveitum og á söngskemmtunum. Auk þess söng hann nokkur óperuhlutverk og önnur sönghlutverk í Þjóðleikhúsinu og tók meðal annars þátt í…
-
Hallbjörg Bjarnadóttir – „Björt mey og hrein“
Hallbjörg Bjarnadóttir (1915–1997) söngkona var fædd í Hjallabúð í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi. Foreldrar hennar voru Geirþrúður Kristjánsdóttir og Bjarni Hallsteinsson. Hún átti tvíburasystur sem hét Kristbjörg og yngri systur, Steinunni, sem báðar voru söng- og leikkonur og búsettar báðar lengst af í Bretlandi. Bjarni faðir þeirra var sjómaður og fórst hann þegar Hallbjörg var aðeins…
-
Veðurbók eftir Árna Ólafsson Thorlacius, Lbs 206 fol.
Árni Thorlacius (1802-1891) var einn af stofnendum lestrarfélags í Stykkishólmi árið 1841 sem varð Amtsbókasafn eða Bókasafn Vesturamtsins árið 1847. Bókasafnið var fyrst til húsa í Norska húsinu sem Árni byggði. Árni var öflugur í sjálfstæðisbaráttunni og tók þátt í sjálfstæðishreyfingu Jóns Sigurðssonar. Milli Árna og Jóns barst mikill fjöldi sendibréfa um ýmiss málefni. Hann studdi einnig…
-
Austrið er rautt – tímarit Kínversk íslenska menningarfélagsins
Kínversk-íslenska menningarfélagið KÍM var stofnað í Reykjavík 20. október 1953. Samkvæmt lögum félagsins stuðlar það að samskiptum Íslendinga og Kínverja á sviði menningar og lista. Félagið er óháð stjórnvöldum bæði á Íslandi og í Kína og er ópólitísk samtök einstaklinga sem áhuga hafa á menningarsamskiptum Kínverja og Íslendinga. Kím hefur frá upphafi stuðlað að gagnkvæmri…
-
Lukkunnar hjól Lbs 656 4to
Í handriti frá miðri 19. öld má finna þessa teikningu af „lukkunnar hjóli“. Það sýnir prúðbúna stúlku í miðju hjóli sem fjórir karlmenn í fínum klæðum halda utan um. Ef til vill eiga þetta að vera vonbiðlar hennar. Karlmaðurinn sem situr efst á hjólinu ber kórónu á höfði en svipur stúlkunnar er óræður. Hugmyndin um…
-
Elsa Sigfúss syngur Heims um ból helg eru jól
Elsa Sigfúss (1908-1979) er að öllum líkindum sá íslenski tónlistarmaður sem sungið hefur inn á flestar plötur, en staðfest er að um hundrað og tuttugu plötur séu til útgefnar með söng hennar. Elsa Sigfúss var dóttir Sigfúss Einarssonar tónskálds (1877-1939) og Valborgar Einarsson (1882-1985), sem var dönsk (fædd Hellemann). Elsa fæddist í Reykjavík en flutti…
-
Vefur Landsbókasafns íslands – Háskólabókasafns
Vefsíður og önnur gögn, sem birt eru eða gerð aðgengileg almenningi á hinum íslenska hluta veraldarvefsins, þ.e. þjóðarléninu .is, svo og efni sem birt er á öðrum lénum á íslensku eða af íslenskum aðilum er varðveitt á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni og þeim miðlað á léninu vefsafn.is. Stefnt er að því að framkvæma árlega þrjár…
-
Mæling Íslands – kort Björns Gunnlaugssonar
Á tímabilinu 1776–1818 voru strendur Íslands mældar og gerðir af þeim uppdrættir sem voru síðar prentaðir. Þó að strandmælingarnar væru merkur áfangi var enn langt í land að komið væri viðunandi kort af landinu í heild, byggðum þess og óbyggðum. Einn þeirra sem voru mjög áfram um að úr þessu yrði bætt var Björn Gunnlaugsson…
-
Nokkur orð um menntun og réttindi kvenna
Nú er þess minnst að 160 ár eru liðin frá fæðingu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, frumkvöðuls í baráttunni fyrir jafnri stöðu kynjanna á Íslandi. Bríet fæddist þann 27. september 1856 og lést árið 1940. Ung að aldri hóf hún að velta fyrir sér jafnréttismálum og þá aðallega misjöfnum möguleikum kynjanna til menntunar. Árið 1885 fékk hún birta…