Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-
Samandregið kort af Norðurhöfum
Zusammengezogene Karte des Nordmeeres – Carte reduite de la mer du nord Þetta kort eftir franska kortagerðarmanninn Jacques Nicolas Bellin birtist fyrst í frásögn Kerguélen–Trémarecs af leiðöngrum hans um norðanvert Atlantshaf 1767 og 1768. Eftirmyndir kortsins birtust víða, m.a. í safni ferðasagna sem var gefið út í Leipzig 1774, Allgemeine Historie der Reisen zu Wasser und…
-
Fjalla-Eyvindur/Bjærg-Ejvind og hans Hustru
Í handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns er varðveitt leikhandrit Jóhanns Sigurjónssonar að Fjalla-Eyvindi. Handritið er skrifað í Danmörku á árunum 1909-1911, bæði á íslensku og dönsku og kom fyrst út á dönsku síðla hausts 1911 sem Bjærg-Ejvind og hans Hustru, endurútgefið tvisvar um daga höfundar, 1913 og 1917, og er sá texti verulega frábrugðinn texta…
-
Passíusálmar. JS 337 4to.
Um þessar mundir er þess minnst að 400 ár eru liðin frá fæðingu Hallgríms Péturssonar (1614-1674) prests og skálds. Eftir hann liggur margvíslegt efni en þekktastir eru Passíusálmarnir. Þetta ástsæla trúarrit Hallgríms er samansafn 50 ljóðatexta og í því kannar Hallgrímur píslarsögu Krists, frá því að Kristur kemur til Getsemane og fram að dauða hans…
-
Brynjólfur Sveinsson biskup
skáldsaga frá 17. öld eftir Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm Torfhildur Þorsteinsdóttir Hólm (1845-1918) var fyrsti íslenski rithöfundurinn sem lifði á skrifum; fyrsti Íslendingurinn til að skrifa sögulegar skáldsögur og fyrsta íslenska konan til að skrifa skáldsögur. Fyrsta sögulega skáldsagan hennar í fullri lengd kom út 1882 og tók á lífi Brynjólfs Sveinssonar biskups. Þó að skáldsagan…
-
Bréf Nínu Tryggvadóttur til Erlends í Unuhúsi
Í bréfasafni Erlends Guðmundssonar (1892-1947) sem kenndur var við Unuhús og opnað var með viðhöfn í safninu í ársbyrjun 2000 eru um 30 einkabréf frá Nínu Tryggvadóttur (1913-1968) listmálara, mörg fallega skreytt og skemmtilega stíluð. Bréfin eru frá þriggja ára tímabili, 1943-1946, þegar Nína dvaldi í New York við nám. Líkur benda til að Nína…
-
CRYMOGAEA SIVE RERUM ISLANDICARVM
Crymogaea telst fyrsta sagnfræðilega frásögnin af Íslandi frá Íslendingabók Ara fróða (1122-1133) og fyrsta bókin sem gaf heildarsýn yfir sögu landsins til þess tíma. Í þessari bók lýsir höfundurinn, Arngrímur Jónsson, pólitískri og menningarlegri sögu Íslands, auk þess að greina frá nýlegum atburðum og lýsa lífi íbúa landsins, trú og tungu. Crymogaea Arngríms er húmanískt…
-
Jólamerki Thorvaldsensfélagsins hafa lengi sett svip á desember
Thorvaldsensfélagið var fyrsta kvenfélagið sem stofnað var í Reykjavík, þann 19. nóvember 1875. Tildrögin voru þau að ungum stúlkum, sem fengið var það verkefni að skreyta Austurvöll þegar styttan af Bertel Thorvaldsen var sett þar niður, þótti svo gaman að þær vildu halda áfram að hittast. Fyrstu verk þeirra voru að hjálpa börnum frá fátækum…
-
Morgunblaðið
Morgunblaðið kom fyrst út þann 2. nóvember 1913 og fagnar því 100 ára afmæli sínu um þessar mundir. Blaðið hefur að geyma viðamiklar heimildir um samtímaviðburði og sögu þjóðarinnar og hefur það frá upphafi verið aðgengilegt í Landsbókasafninu. Það var bundið inn á bókbandsstofu safnsins allt til 1980. Í byrjun árs 2000 kynnti Landsbókasafn Íslands…
-
Þúsund ein nótt
Steingrímur Thorsteinsson (1831–1913) var mikilvirkur þýðandi og þýddi úr þýsku sagnasafnið Þúsund og eina nótt. Íslendingar komust fljótt á snoðir um þann bókmenntalega hvalreka sem Þúsund og ein nótt var, en sögurnar eiga rætur að rekja til Austur-og Miðausturlanda. Fleiri spreyttu sig á að þýða sögur úr safninu og til eru óprentaðar þýðingar og þýðingabrot…
-
Lestrarfélag kvenna
var stofnað í Reykjavík 18. september árið 1911 af konum úr Kvenréttindafélagi Íslands sem höfðu þá rekið lesstofu fyrir konur í tvö ár. Fyrirmyndin kom að utan, en slíkar stofur voru reknar víða í Evrópu og meðal annars í Kaupmannahöfn. Félagsritið Mánaðarritið hóf göngu árið 1912 og var handskrifað inn í sérstaka bók og lesið…
-
Ritgerð og teikningar Sölva Helgasonar
Handritið Lbs 937 8vo inniheldur ritgerðarbrot og teikningar eftir flakkarann nafnkunna, Sölva Helgason. Sölvi fæddist þann 16. ágúst 1820 í Skagafirði. Sem barn var hann vistaður á ýmsum bæjum og lagðist hann svo á flakk um 16 ára aldurinn. Árið 1843 var hann handtekinn fyrir að vera með falsaðan reisupassa og hlaut dóm fyrir það…
-
Íslenskt ástarljóð
Íslenskir tónar gáfu út nóturnar og upptökuna á 78 snúninga hljómplötu árið 1953. Í augum þínum unaðsbláu, augunum sem ljóma best, sé ég landið litla vina, landið, sem ég elska mest. Litla, fagra, ljúfa vina, lífið fer að kalla á þig mundu þá, að þú ert landið, og þá hefurðu elskað mig. Litla, fagra, ljúfa…