Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-
Sigling
Upptakan var gefin út á 78 snúninga hljómplötu árið 1933. Flutt af Erling Ólafssyni (1910–1934), söngvara sem lést aðeins 24 ára gamall úr berklum, ári eftir að hann söng þetta lag inn á plötu. Hann var bróðir Sigurðar Ólafssonar söngvara. Höfundur lags: Ernesto De Curtis (1875–1937) fæddist og bjó alla sína tíð í Napolí á…
-
Gvendur dúllari
Guðmundur Árnason fæddist 7. júlí 1833. Hann ólst upp í Tungu í Vestur-Landeyjahreppi en hann missti foreldra sína ungur. Sagt er að hann hafi fengið taugaveiki og heilabólgu, sem varð til þess að hann missti allt vit um skeið, og mun aldrei hafa orðið samur. Guðmundur er frægur af viðurnefni sínu, Gvendur dúllari, en það…
-
Fyrirlestur um hagi og rjettindi kvenna
Nafn Bríetar Bjarnhéðinsdóttur (1856-1940) er tengt jafnréttisbaráttu kvenna á Íslandi sterkum böndum. Í lok ársins 1887 hélt hún fyrirlestur í Reykjavík um hagi og réttindi kvenna yfir stórum hóp áheyrenda. Hún rakti stöðu kvenna í samtíma sínum; ekki bara á Íslandi, heldur líka í Evrópu og Bandaríkjunum. Hún lagði m.a. áherslu á launamun kynjanna og…
-
Hugmynd Eiríks Magnússonar að framtíðarbókasafninu frá 1886
Eiríkur Magnússon (1833-1913) bókavörður í Cambridge kynnti hugmynd sína um framtíðarbókasafn 1886. Eiríkur sér fyrir sér hringlaga grunnsnið þar sem kjarni bókasafnsins verði nánast sem óbreyttur um ókomin ár. Frá miðjunni eru gangar til allra átta, þannig að alltaf megi rata inn að miðjunni og ekki þarf að fara nema stystu leið eftir göngunum. Síðan…
-
Einfalt Matreiðslu Vasa Qver fyrir heldri manna húsfr.
Matreiðsluvasakver fyrir heldri manna húsfreyjur, sem gefið var út af Magnúsi Stephensen árið 1800, er fyrsta íslenska matreiðslubókin. Marta María Stephensen, mágkona Magnúsar, var skrifuð sem höfundur þessa rits en líklegt er þó talið að Magnús sjálfur hafi séð um þetta verk og þá þýtt uppskriftirnar úr dönsku. Smellið á myndina til að skoða bókina…
-
Calendarivm
CALENDARIVM Islendskt Rijm. So Menn mættu vita huad Tijmum Aarsins lijdur, med þui hier eru ecke aarleg Almanch : Med lijtellre Vysyringu og nóckru fleira sem ei er oþarflegt ad vita. 1597 Þetta almanak er það elsta sem hefur varðveist á Íslandi, prentað á Hólum 1597. Að öllum líkindum var það Arngrímur Jónsson sem safnaði saman…
-
Jólasveinarnir í kvæðakverinu Jólin koma
Árið 1932 kom út kvæðakver Jóhannesar úr Kötlum Jólin koma með vísum um íslenskar jólavættir. Tryggvi Magnússon myndskreytti bókina, en hann var þá þekktasti teiknari landsins. Bókin kom út á tíma sjálfstæðisbaráttunnar þegar þjóðararfurinn gekk í endurnýjun lífdaga. Þjóðsagnaminni voru færð nær þjóðinni og um leið mörkuð sérstaða íslenskrar menningar. Á fyrri hluta 20. aldar…
-
Íslenskar þjóðsögur og ævintýri 1862-1864
Kjörgripur mánaðarins að þessu sinni eru Íslenskar þjóðsögur og ævintýri sem Jón Árnason (1819-1888) tók saman og gaf út á árunum 1862-1864. Í fyrra bindinu eru sögur af álfum, tröllum, draugum og öðrum kynjaverum; af fjölkynngi, dýrum og náttúrufyrirbærum. Í seinna bindinu eru goðsögur, ævintýri, útlagasögur, hjátrú, frásagnir af raunverulegum atburðum og skopsögur. Bækurnar urðu…
-
Vögguvísa
Handrit Vögguvísu eftir Elías Mar var afhent Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni ásamt öðrum handritum Elíasar og gögnum eftir lát hans 2007. Vögguvísa hefur þá sérstöðu að vera samtímasaga úr Reykjavík eftirstríðsáranna og þar kemur ekki fram togstreita á milli sveitar og borgar líkt og er mjög algengt í skáldskap þess tíma. Annað sem einkennir Vögguvísu…
-
Þuluvafningur
Á safnið koma reglulega ný aðföng af ýmsum toga. Þann 25. júní 2012 var safninu afhentur vafningur með Þulu Sigurðar Nordal í eiginhandarafriti hans. Þuluna gaf hann Theodóru Thoroddsen til merkis um vináttu þeirra. Þuluna hefur Sigurður skrifað á langt blað, rúllað upp og sett fallegan bláan silkiborða utan um. Blaðið sem þulan er skrifuð…
-
Eldrit séra Jóns Steingrímssonar
Kjörgripur mánaðarins er handritið Lbs 1552 4to. Handritið er svokallað Eldrit séra Jóns Steingrímssonar (1728–1791) á Prestbakka á Síðu. Jón skrifaði handritið árið 1788. Í ritinu fjallar hann um aðdraganda og afleiðingar Skaftáreldanna. Þann 8. júní 1783 hófst eldgos í Lakagígum og stóð það fram í febrúar 1784 með alvarlegum afleiðingum fyrir íbúa landsins. Mikið…
-
Sumargjöf handa börnum
Guðmundur Jónsson. Sumar-Giøf handa Børnum. Leirárgörðum 1795. Lestrarbók fyrir börn á aldrinum 5-10 ára. Þýdd úr dönsku af séra Guðmundi Jónssyni (1763-1836) og gefin út 1795. Bókin er í formi samtals á milli föður og barnanna hans, þar sem hann sannfærir þau um að leggja niður sína slæmu siði og hjátrú. Í bókinni eru líka…