Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-
Arnbjörg æruprýdd dándis-kvinna á Vestfjördum Islands
Séra Björn Halldórsson (1724-1794) frá Sauðlauksdal skrifaði bók fyrir húsmæður árið 1770. Samkvæmt Birni ætti góð húsmóðir að vera guðhrædd og laus við alla hjátrú, hún ætti að sjá vel um heimilið; og vera háttprúð og góð eiginkona sem styddi við bakið á eiginmanni sínum. Hún ætti að kenna börnunum þeirra góða hegðun, venja þau…
-
Kôshoku ichidai otoko (Líf ásthneigðs manns) (1682)
Ihara Saikaku (1642-1693) Rithöfundurinn Ihara Saikaku byrjaði feril sinn sem haikai-skáld og færði mikið af óhátíðlegum orðaleikjum og frjálslegum tengingum þessarar bókmenntagreinar inn í skáldsagnaskrif sín. Verk hans fanga Edo-þéttbýlismenningu og ruddalega orku hennar. Líf ásthneigðs manns er fyrsta ukiyo zôshi (skáldsaga hins fljótandi heims) og er Saikaku talin einn merkasti fulltúi þeirrar bókmenntagreinar í…
-
Atli
Atli edr Raadagiørdir Yngismañs um Bwnad sinn : helst um Jardar- og Qvikfiaar-Rækt Atferd og Agooda med Andsvari gamals Bónda : Samanskrifad fyri Faatækis Frumbylinga, einkanlega þaa sem reisa Bw aa Eydi-Jørdum Anno 1777. Þessi bók er talin vera eitt helsta bókmenntaverk íslensku upplýsingaraldarinnar. Höfundurinn, séra Björn Halldórsson (1724-1794) í Sauðlauksdal, skrifaði bókina í formi…
-
Vísnabókin 1612
Ein Ny Wiisna Bok (Ein ný vísnabók) var gefin út af Guðbrandi Þorlákssyni 1612. Bókin inniheldur trúar- og kennslukveðskap. Markmið útgáfunnar var að draga úr áhrifum veraldlegrar ljóðlistar meðal almennings. Guðbrandur fékk mörg fremstu trúarlegu skáld samtímans til að yrkja í bókina. Þar að auki valdi hann í bókina verk margra skálda frá því snemma…
-
Um Íslands adskiljanlegar náttúrur – JS 401 XI 4to
Brot úr frægasta verki Jóns lærða Guðmundssonar (1574-1658) — Jón var, þrátt fyrir viðurnefnið, sjálflærður maður. Handritið er frumsamið; var skrifað einhvern tímann á árunum 1640-1644 og í því eru margar myndir af hvölum — sumar hverjar nákvæmar eftirmyndir, á meðan aðrar eiga meira að sækja í hugmyndaflug höfundar. Texti Jóns var dáður og mikið…
-
Brevis commentarius de Islandia
Arngrímur Jónsson lærði (1568-1648) var rektor Hólaskóla og aðstoðarprestur í Hólakirkju. Brevis commentarivs de Islandia er fyrsta bókin skrifuð af Íslendingi með það sérstaklega fyrir augum að fræða útlendinga um landið og íbúa þess; og benda á sama tíma á ýkjur, alhæfingar og rangtúlkanir um Ísland og Íslendinga. Helsta skotmark Arngríms var kvæði eftir Gories…
-
Jónsbók
Jónsbók er lögbók sem tók gildi 1281 og nefnd eftir Jóni Einarssyni (d. 1306). Jónsbók er til í fjölmörgum handritum. Varðveitt eru yfir 260 handrit. Sumar lagagreinarnar Jónsbókar eru enn í gildi. Þetta eintak var ritað á Hólum 1681, er á góðum pappír og með rúmum spássíum; snyrtilega skreytt með myndstöfum og yfirskrift í tveimur…
-
Guðmundur Finnbogason: Lýðmenntun
Um aldamótin 1900 var Guðmundur Finnbogason, fv. landsbókavörður, sálfræðingur og heimspekingur (1873-1944), ráðgjafi stjórnvalda í menntamálum. Hann ferðaðist um Norðurlönd á árunum 1901-1902 og kynnti sér mennta- og skólamál. Eftir ferðina gaf hann út bókina Lýðmenntun þar sem hann ræddi um mikilvægi almennrar skólaskyldu og menntunar. Hugmyndir Guðmundar í uppeldisfræði þóttu nýstárlegar á þessum tíma.…
-
Kringlublaðið
Kringlublaðið er stakt skinnblað ritað um árið 1260. Blaðið er það eina sem hefur varðveist af handriti sem var nefnt Kringla og brann í Kaupmannahöfn árið 1728. Handritið hafði að geyma konungsögur sem eru þekktar undir heitinu Heimskringla. Höfundur þeirra var skáldið og stjórnmálamaðurinn Snorri Sturluson (1178-1241). Blaðið fannst í Konungsbókhlöðu í Stokkhólmi og hefur…
-
Anarkismi í boði Vestur-Íslendinga
Fjöldi Íslendinga flutti til Vesturheims á síðustu áratugum 19. aldar og kynntist samfélögum sem voru gerólík hinu íslenska. Þeir kynntust nýjum siðum og samfélagsumræðu sem sprottin var úr kynja- og stéttabaráttu iðnaðarsamfélags sem enn hafði ekki skotið föstum rótum á Íslandi. Ritsmíðar og öflug útgáfustarfsemi hefur löngum fylgt Íslendingum og hún var mikil meðal þeirra…
-
Beinlausir fuglar, whiskey og champagnepúns
í Nýrri matreiðslubók Desember er sá mánuður ársins sem myrkastur er en jafnframt sá sem ber með sér aukna birtu og lengingu dags. Frá fornu fari hafa menn gert sér glaðan dag af þessu tilefni og hert sig í áti og drykkju. Það er alltaf fagnaðarefni þegar nýjar matreiðslubækur eru gefnar út sem auðvelda mönnum…
-
Kvennaframboðið 1908
Kvennaframboð kom fram við bæjarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 1908. Kvenréttindafélag Íslands boðaði stjórnir kvenfélaga í Reykjavík til fundar þann 2. nóvember 1907 vegna bæjarstjórnarkosninga sem skyldi halda í janúar 1908. Samkvæmt nýjum lögum um bæjarstjórnarkosningar í Reykjavík höfðu nú eiginkonur kjósenda kosningarétt ásamt ógiftum konum og ekkjum sem greiddu skatt og konum var mikið í mun…