Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-

Nonni. Brot úr æskusögu Íslendings. Eigin frásögn
Í bókum Jóns Sveinssonar, Nonna, segir frá ævintýrum hans og bróður hans, Manna. Bækurnar eru tólf talsins og hafa verið gefnar út í milljónum eintaka á tugum tungumála. Hann er gríðarlega vinsæll í útlöndum og líklega sá höfundur sem hefur verið gefinn út á flestum tungumálum, þangað til nýlega. Bækur Nonna njóta enn mikilla vinsælda…
-

Perla Fáfnisdóttir – ungfrú Alísland
Nýr skjala- og upplýsingavefur um og eftir Rauðsokkahreyfinguna (1970–1982) hefur nú verið opnaður. Vefurinn er unninn upp úr skjölum hreyfingarinnar sem eru varðveitt á Kvennasögusafni. Meðal þess sem varðveist hefur eru stór, handgerð veggspjöld sem sýna vel hversu gáskafull hreyfingin gat verið í aðgerðum sínum. Kjörgripur safnsins í nóvember er veggspjald af Perlu Fáfnisdóttur, sem…
-

Hlaupvídd sex eftir Sigurð Pálsson – veggspjald frá Nemendaleikhúsinu
Leiklistarskóli SÁL var starfræktur á árunum 1972-1975. Á þeim tíma var enginn starfandi leiklistarskóli á Íslandi eftir að Þjóðleikhúsið og Leikfélag Reykjavíkur lokuðu sínum skóla til að þrýsta á ríkið til að opna ríkisrekinn leiklistarskóla. Sumarið 1972 fundaði hópur af ungu fólki sem var orðið óþolinmótt eftir nýjum skóla og í kjölfarið voru Samtök áhugafólks…
-

Virkisvetur – Björn Th. Björnsson
Þann 3. september er öld liðin frá fæðingu Björns Th. Björnssonar listfræðings og rithöfundar. Björn var fyrstur Íslendinga til að ljúka listfræðinámi og var brautryðjandi í rannsóknum á íslenskri myndlist. Hann var vinsæll fyrirlesari og kenndi fjölmenn námskeið í listasögu við Háskóla Íslands í yfir tvo áratugi. Birni Th. var veittur riddarakross hinnar íslensku fálkorðu…
-

Letters on Iceland
Uno von Troil (1746–1803) var sænskur guðfræðingur sem ferðaðist um Evrópu um 1770 þar sem hann hitti upplýsingarmenn á borð við Rousseau, Diderot og d’Alembert. Hann kom síðan við í London þar sem hann hitti vin sinn, náttúrufræðinginn Daniel Solander. Þegar Joseph Banks frétti að Troil væri áhugamaður um íslenska tungu var honum boðið með…
-

„Halldóra“ Biblía kennd við Guðbrand Þorláksson biskup á Hólum, eintak Halldóru dóttur hans
Á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni eru varðveitt níu eintök af Guðbrandsbiblíu, sem var prentuð árið 1584. Hún er fyrsta heildarútgáfa Biblíunnar á íslensku og er kennd við Guðbrand Þorláksson (1541–1627) biskup á Hólum. Talið er að hún hafi verið prentuð í 500 eintökum. Eitt þeirra eintaka sem er í eigu safnsins á sér merkilega eigendasögu.…
-

Ferðabók Dr. Helga Pjeturss
Ferðabók Dr. Helga Pjeturss kom út hjá Bókfellsútgáfunni 1959. Fremst í bókinni er frásögn af rannsóknaleiðangri til Grænlands árið 1897, sem fyrst birtist á prenti 1899. Í þeim leiðangri aflaði Helgi sér mikilsverðrar reynslu við skoðun jökulmenja, sem nýttist honum við rannsóknir hérlendis. Í miðhluta bókarinnar eru greinar um jarðfræði Íslands ætlaðar öllum almenningi auk…
-

Stúlkan frá Tungu eftir Indriða Einarsson
Kjörgripur mánaðarins er leikritið Stúlkan frá Tungu eftir Indriða Einarsson. Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi leikritið í Iðnó annan í jólum árið 1909 undir leikstjórn Indriða. Handrit leikritsins er með rithönd Indriða og er eina þekkta eintakið af leikritinu, það kom aldrei út á bók. Leiksýningin vakti ekki mikla lukku meðal áhorfenda og einungis sýnt sjö sinnum…
-

Blómateikningar Torfhildar Hólm, Lbs 3988 4to
Torfhildur Hólm fæddist á Kálfafellsstað í Suðursveit þann 2. febrúar 1845. Foreldrar hennar voru séra Þorsteinn Einarsson og Guðríður Torfadóttir. Hún giftist Jakobi Hólm verslunarstjóra, en varð ung ekkja því maður hennar lést eftir aðeins eins árs hjónaband. Torfhildur lagði stund nám í ensku og hannyrðum í Reykjavík. Hún flutti til Vesturheims árið 1876 og fyrstu…
-

Lbs 36 4to – Kennidómsins spegill – Kennslubók í prédikarafræðum eftir Pál Björnsson í Selárdal
„Hvör ertu? Eg er hrópandi rödd í eyðimörku, segir skírarinn […] Á daginn er eg þess hrópandi Guðs rödd. Guð hrópar fyrir mig, nú hart, nú sagt, nú sætt, nú súrt, stundum lokkar hann og huggar, stundum hræðir hann og hótar, það er mér snart nóg. Eg hrópa af öllum krafti. Mín tár hrópa. Svo…
-

Viðbrögð Gunnlaugs Briem við valdaráni Jörundar Hundadagakonungs 1809
Kjörgripur janúarmánaðar er ritgerð Gunnlaugs Briem sýslumanns (1773–1834), Quid sentimus? Quid faciendum? sem mætti útleggja á íslensku sem Hvað álítum vér? Hvað ber að gera? Gunnlaugur tók ritgerðina saman í kjölfar valdaráns Jörundar Hundadagakonungs (1780–1841) sumarið 1809. Jörundur kom hingað til lands í júní 1809 sem túlkur í verslunarskipi Samuel Phelps sápukaupmanns. Þeir sáu sér…
-

Bréfabók Hannesar biskups Finnssonar og ekkjufrúar hans Valgerðar Jónsdóttur, Lbs 26 fol.
Í handritinu Lbs 26 fol. er „Bréfabók Hannesar biskups Finnssonar og ekkjufrú hans Valgerðar Jónsdóttur“. Jafnan er þó talað um bókina sem bréfabók Valgerðar þar sem stærsti hluti hennar inniheldur bréf frá henni. Bókin barst til Landsbókasafns ásamt öðrum handritum, tæplega 400 talsins, sem Valgerður seldi safninu árið 1846. Teljast kaupin á þeim handritum stofninn…