Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-

Landfræðissaga Íslands – Þorvaldur Thoroddsen
Landfræðissaga Íslands eftir Þorvald Thoroddsen kom út í fjórum bindum 1892–1904 og þýsk útgáfa í tveimur bindum 1897–1898. Landfræðissagan er eitt mesta stórvirki Þorvaldar og er hann án efa einn afkastamesti rithöfundur þjóðarinnar fyrr og síðar. Hann ritaði bæði á íslensku og erlendum málum og uppfræddi jöfnum höndum landa sína um náttúru Íslands og alþjóðlega…
-

Húsmæðrablaðið 1916
Í safni Valgerðar Lárusdóttur Briem (1885-1924) má finna átta handskrifuð blöð af ritinu Húsmæðrablaðið sem hún setti saman árið 1916. Blöðin voru ætluð félagskonum í Húsmæðrafélagi Hrafnagilshrepps. Upphafsorð fyrsta blaðsins voru eftirfarandi: Þetta litla blað er ég nú sendi út til ykkar kæru sveitarsystur, bið ég ykkur að taka við, sem væri það sendibréf frá mér til ykkar. Húsmæðrablað heitir það af því það á inni að halda ýmislegt, sem húsmæður gætu að einhverju leyti haft gaman eða gagn af. Vildi ég óska þess, að þið tækuð við því af eins einlægu hjarta og það er sent. Sömuleiðis er það ósk mín, að einhver kærleiksneisti mætti dyljast í línum þess, og senda skin inní sál hverrar einstakrar sem les. Gæfa sönn og gleði holl fylgi ykkur kæru vinkonur. Valgerður Lárusdóttir Briem. Valgerður var söngkona, hljóðfæraleikari og tónskáld. Hún var fyrsta íslenska konan sem fékk lag eftir sig birt á prenti. Að auki stofnaði hún fyrsta íslenska kvennakórinn, Gígjurnar, veturinn 1904–1905. Einkaskjalasafn hennar er varðveitt á Kvennasögusafni og var afhent þangað árið 1985. KSS 37. Valgerður Lárusdóttir Briem. Einkaskjalasafn. Handritið má sjá á sýningunni Fortíðarraddir. Handrit, prent og persónulegar heimildir.
-

Bréf Níelsar Jónssonar til Guðrúnar Bjarnadóttur (Lbs. 1000 fol.).
Kjörgripur safnsins í septembermánuði er bréf Níelsar Jónssonar til Guðrúnar Bjarnadóttur. Í mars 1893 skrifaði Níels Jónsson frá Tindi í Strandasýslu (1870 – 1934), bréf til unnustu sinnar, Guðrúnu Bjarnadóttur frá Gjögri (1872 – 1943). Í bréfinu ræðir Níels tilfinningar sínar gagnvart Guðrúnu og bindur vonir til þess að framtíðin verði þeim gæfurík. Bréfið er…
-

„Nokkurar sögur og þættir af fornaldarmönnum Íslendinga“ − Lbs 747 fol.
Handritið „Nokkurar sögur og þættir af fornaldarmönnum Íslendinga“ er varðveitt í handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns undir safnmarkinu Lbs 747 fol. Það er skrifað og skreytt á tímabilinu 1871-1873 af bræðrunum Guðlaugi og Guðmundi Magnússonum, sem voru vinnumenn á Hafursstöðum og Breiðabólsstað á Fellströnd. Í handritinu eru brot úr fjölmörgum Íslendingasögum: Njáls sögu, Svarfdæla sögu,…
-

Auglýsingar Jörundar hundadagakonungs
Kjörgripir safnsins í júlí eru tvær auglýsingar Jörundar hundadagakonungs (Jørgen Jørgensen) sem tók þátt í valdaráni á Íslandi sumarið 1809. Í fyrri auglýsingunni sem er dagsett 26. júní 1809 er lýst yfir sjálfstæði landsins: „Ísland er laust og liðugt frá Danmerkur Ríkisráðum“. Auglýsinguna frá 26. júní 1809 má sjá hér. Í þeirri seinni, sem er…
-

Tímaritið 19. júní
Tímaritið 19. júní kom út í Reykjavík mánaðarlega á árunum 1917–1929. Það var kvenréttindablað. Til umfjöllunar í blaðinu voru baráttumál kvenna svo sem landsspítalamálið og notkun kosningarréttarins en auk þess voru umsagnir um bækur, húsráð, uppeldisráð, uppskriftir, sögur og ljóð ásamt umfjöllunum um einstaka stórhuga konur, bæði íslenskar og erlendar. Inga Lára Lárusdóttir, kennari og kvenréttindakona, var ritstjóri og útgefandi…
-

ÍBR 1 4to. Lögbók Magnúsar kóngs. Íslendingum útgefin enn nú að nýju. Skrifuð á Hólum í Hjaltadal anno 1681.
Jónsbók er lögbók sem tók gildi 1281 og nefnd eftir Jóni Einarssyni (d. 1306), sem skrifaði stóran hluta hennar. Texti hennar er enn til í yfir 260 handritum, enda hagnýtt gildi hans óumdeilanlegt. Sumar lagagreinarnar Jónsbókar eru enn í gildi í íslenskum lögum, m.a. um landamerki og reka. ÍBR 1 4to var ritað á Hólum…
-

Jón Múli Árnason: „Vikivaki“
Jón Múli Árnason (1921-2002) var þjóðþekktur fyrir störf sín sem útvarpsmaður og lagahöfundur. Flest lög Jóns Múla voru samin fyrir revíur sem hann gerði með Jónasi Árnasyni bróður sinum: Deleríum Búbónis (frumflutt í útvarpi 1954, á sviði 1959), Rjúkandi ráð (1959), Allra meira bót (1961) og Járnhausinn (1965). Jón Múli var mikill djassáhugamaður og kenndi djasssögu, en…
-

Dimmalimm eftir Guðmund Thorsteinsson (Mugg)
Sagan af Dimmalimm kóngsdóttur á aldarafmæli um þessar mundir. Guðmundur Thorsteinsson, Muggur (1891-1924) ferðaðist til Ítalíu í marsbyrjun 1921, skömmu eftir frumsýningu á kvikmyndinni Saga Borgarættarinnar sem gerð var eftir sögu Gunnars Gunnarssonar þar sem Muggur fór með eitt aðalhlutverkið. Tilgangurinn með Ítalíuförinni var að fara til Siena í Toscana og vinna að altaristöflunni Kristur…
-

Gripir úr fórum Bjargar C. Þorláksson
Björg Karítas Þorláksdóttir sem þekkt var sem Björg C. Þorláksson var fyrst íslenskra kvenna til að ljúka doktorsprófi árið 1926 við Sorbonne-háskólann í París og vann að útgáfu Íslensk-danskrar orðabókar í fjölda ára ásamt Sigfúsi Blöndal, eiginmanni sínum. Björg fæddist að Vesturhópshólum í Húnaþingi þann 30. janúar 1874. Foreldrar hennar voru Margrét Jónsdóttir og Þorlákur…
-

„Nú árið er liðið í aldanna skaut“ – Einar Markan
„Nú árið er liðið í aldanna skaut“ er sálmur eftir séra Valdimar Briem (1848-1930). Hann samdi sálminn sama ár og ný sálmabók kom út, 1886. Þar birtust í fyrsta skipti margir þekktustu sálmar íslenskrar kirkju. Lagið er eftir danska 19. aldar tónskáldið, organistann og söngkennarann Andreas Peter Berggreen (1801-1880). Berggreen samdi lagið árið 1873 við…
-

„Í dag er glatt í döprum hjörtum“ – Hreinn Pálsson
Árið 1930 söng Hreinn Pálsson (1901-1978) þetta lag, „Í dag er glatt í döprum hjörtum“, inn á 78 snúninga hljómplötu. Dr. Franz Mixa (1902-1994) lék undir á orgel. Hann var austurrískur hljómsveitarstjóri og tónskáld sem hafði verið ráðinn til að stjórna tónlistarflutningi á 1000 ára afmælishátíð Alþingis þetta sama ár og varð hann ein helsta…