Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-

Lbs 663 8vo – Hústafla eða Oeconomia Christiana
Lbs 663 8vo inniheldur Hústöflu, eða Oeconomia Christiana, séra Jóns Magnússonar (1601–1675) í Laufási við Eyjafjörð. Handritið var bundið inn árið 1776 fyrir Rannveigu Ólafsdóttur (1734–1814) húsfreyju í Sauðlauksdal og sennilega hefur það verið skrifað um svipað leyti, jafnvel sérstaklega fyrir Rannveigu. Það er skrautritað og talið skrifað af séra Birni Þorgrímssyni (1750–1832) sem var…
-

Ísland skapar fordæmi : og greinargerð á umsóknum til Alþingis fyrir hina íslensk-dönsku orðabók Sigfúsar Blöndal og samverkamanna – Björg C. Þorláksson
Íslensk–dönsk orðabók er að mestu leyti samvinnuverkefni hjónanna Sigfúsar og Bjargar Þ. Blöndal sem þau hófu í Kaupmannahöfn á fyrsta hjónabandsári sínu árið 1903. Unnu þau svo stöðugt að orðabókinni næstu 17 árin en sökum fastra starfa Sigfúsar á Konunglega bókasafninu er ljóst að hlutur Bjargar hefur síst verið minni en hans við orðabókarstarfið. Íslensk-dönsk orðabók…
-
Vídalínspostilla
HVSS-POSTilla, EDVR EINFALLDAR PREDIKANER Yfer øll Haatijda og Suñudaga Gudspiøll Aared Vmm Krijng (Húspostilla eður einfaldar predikanir yfir öll hátíða- og sunnudagaguðspjöll árið um kring) Jón Vídalín (1666-1720) Skálholtsbiskup ritaði þetta predikanasafn sem var gefið út á árunum 1718-1720. Vídalínspostilla eða Jónsbók varð ein mest lesna bókin á Íslandi næstu eina og hálfa öldina. Hún…
-

Handrit eftir Sölva Helgason (1820–1895)
Sölvi Helgason, Sólon Islandus, er einn þekktasti flakkari Íslands. Hann var fæddur 16. ágúst 1820 á Fjalli í Sléttuhlíð í Skagafirði og því eru nú liðin 200 ár frá fæðingu hans. Sem barn var hann vistaður á ýmsum bæjum og lagðist svo á flakk um 16 ára aldurinn. Árið 1843 var Sölvi handtekinn fyrir að…
-

Skrá yfir prentaðar íslenzkar bækur og handrit í Stiptisbókasafninu í Reykjavík
Árið 1848 var Jón Árnason ráðinn bókavörður við Stiftsbókasafnið, er síðar var nefnt Landsbókasafn, og gegndi þeirri stöðu samhliða öðrum störfum þar til hann fór á eftirlaun árið 1887. Hann var fyrsti starfsmaður safnsins, en áður hafði stjórnarnefnd safnsins sinnt því í hjáverkum. Safnið var formlega sett á fót árið 1818 og opnað til notkunar…
-

Koparstunga í Nýársgjöf handa börnum 1841
Höfundurinn, Jóhann Halldórsson (1809- 1844) er einn fyrsti íslenski barnabókahöfundurinn en eflaust eru sumar sögurnar í bókum hans þýddar þótt ekki sé þess getið sérstaklega. Fyrsta þýðingin á sögu úr ævintýrum Grimmsbræðra, sagan Maríubarnið, birtist í þessari bók sem prentuð var í Kaupmannahöfn 1841. Ekki er að finna mörg dæmi um koparstungu í íslensku prentefni…
-

Þjóðleikhúsið 70 ára
teikningar og kort eftir Thorbjörn Egner Í ár eru liðin 70 ár frá vígslu Þjóðleikhússins sem bar upp á sumardaginn fyrsta þann 20. apríl 1950, og markaði sá dagur sannarlega tímamót í íslenskri sögu og menningu. Afmælissýning þess í ár er hið vinsæla leikverk Kardemommubærinn eftir norska leikrita- og söngvaskáldið Thorbjörn Egner (1912–1990) og er…
-

Íslensk-dönsk orðabók
Íslensk–dönsk orðabók kom út á árunum 1920–24. Bókin er 1052 blaðsíður og hefur að geyma 114.000 uppflettiorð. Orðabókin er lykilverk í íslenskri orðabókasögu og er enn stærsta íslenska skýringaorðabókin sem hefur verið unnin til þessa. Allar skýringar á orðum, orðasamböndum og dæmum eru á dönsku.Íslensk–dönsk orðabók er að mestu leyti samvinnuverkefni hjónanna Sigfúsar Blöndal (1874–1950)…
-

Prentmyndasafn Ólafs Hvanndal í handritasafni
Fyrstu myndamótagerð sína stofnaði Ólafur J. Hvanndal (1897- 1954) í Reykjavík árið 1919. Þá má segja að Ólafur hafi flutt nýja iðngrein inn í landið. Prentmyndagerð Ólafs J. Hvanndal var lengi í húsi prentsmiðjunnar Gutenberg í Þingholtsstræti, en flutti síðar í steinhúsið í Mjóstræti 6, þar sem prentsmiðjan Acta var um tíma. Um 1930 voru…
-

Geltandi vatn
Súrrealistahópurinn Medúsa gaf út tímaritið Geltandi vatn árið 1985. Aðeins kom út eitt tölublað. Í því birtist svohljóðandi yfirlýsing: „Geltandi vatn er gefið út af Medúsu og er málsvari og hljóðnemi ástríðna okkar. Héðan munum við mölva allt sem reynir að hindra okkur í því að eiga stefnumót við lífið. Uppreisn höfuðskepnanna getur ekki beðið…
-

Dánarósk Hólmfríðar Benediktsdóttur
frá árinu 1838 „Þar eð mín ógleymanlega dýrmæta dóttir Hólmfríður sáluga sem burtkallaðist frá hérvistardvölinni 28. nóvember næstliðinn á sínu 14 aldursári ámálgaði oft við mig í sinni 1 vikna sjúkdómslegu, sem dró hana til dauða, að ég, auk annarra smærri gjafa, sem hún ánafnaði sjálf, „skyldi gjöra sín vegna gott munaðarlausum börnum“ og ítrekaði…
-

Elsa Sigfúss
Det kimer nu til julefest Elsa Sigfúss er að öllum líkindum sá íslenski tónlistarmaður sem sungið hefur inn á flestar plötur en staðfest er að um hundrað og tuttugu plötur séu til útgefnar með söng hennar. Allt eins er líklegt að þær séu fleiri enda starfaði Elsa allan sinn söngferil í Danmörku, plötur hennar voru…