Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-

Om jordbranden paa Island i aaret 1783
Sæmundur Magnússon Hólm Í byrjun júní 1783 hófst mikill eldgangur að fjallabaki norðan Síðu, oft kenndur við fjallið Laka, sem er á þessum slóðum. Gosið er kunnast með heitinu Skaftáreldar og átti eftir að standa fram í febrúar 1784. Strax með haustskipunum bárust fréttir til Danmerkur af eldgosinu en vafalaust sumar ónákvæmari en skyldi. Einn…
-

Jóhann Sigurjónsson: Fjalla-Eyvindur
Jóhann Sigurjónsson fæddist á Laxamýri 1880 og lést úr berklum í Kaupmannahöfn 1919. Nú er því 100. ártíð hans. Jóhann er hvað þekktastur fyrir leikritið Fjalla-Eyvindur. Leikrit í fjórum þáttum sem gefið var út á bók 1912. Leikritið var sett á svið og naut hylli á Norðurlöndunum og í Þýskalandi og einnig í Bandaríkjunum. Victor…
-

Þjóðsagnahandrit Jóns Árnasonar
Í ár eru liðin 200 ár frá fæðingu Jóns Árnasonar sem fæddist þann 17. ágúst 1819 og lést 4. september 1888. Hann var landsbókavörður frá 1848 til 1887, og sinnti því starfi af mikilli elju og áhuga þrátt fyrir að fjármagn væri af skornum skammti. Jón var jafnframt um tíma heimiliskennari hjá Sveinbirni Egilssyni kennara…
-

Sá nýi yfirsetukvennaskóli
: eður stutt undirvísun um yfirsetukvennakúnstina Sá nýi yfirsetukvennaskóli var gefinn út á Hólum 1749. Bókin er fyrsta kennsluritið fyrir ljósmæður sem gefið var út á íslensku og var þýdd úr dönsku af Vigfúsi Jónssyni, nafntoguðum fræðimanni og presti. Það var Halldór Brynjólfsson Hólabiskup sem hvatti til íslensku útgáfunnar. Honum fannst að ljósmæður ættu að…
-
Halldór Laxness
Barn náttúrunnar Barn náttúrunnar er fyrsta skáldsaga Halldórs Kiljans Laxness (1902-1998) sem hann skrifaði aðeins 16 ára gamall. Sagan segir af ástarsambandi Huldu, stefnulausrar sveitastelpu, og Randvers, auðugs Vestur-Íslendings frá Kanada. Randver ákveður að elta sannfæringu sína; hættir sem fasteignasali og snýr aftur til Íslands til að verða bóndi. Hann þráir einfalt en vandað líf,…
-
Ljósmæðrablaðið
Kjörgripur í júní Ljósmæðrafélagið hefur gefið út Ljósmæðrablaðið samfellt frá því árið 1922. Það telst vera elst kvennablaða sem enn er í útgáfu. Í dag er blaðið ritrýnt fagtímarit og kemur út tvisvar á ári. Núverandi ritstjóri er Ólöf Ásta Ólafsdóttir. Allir árgangar blaðsins eru aðgengilegir á vefnum timarit.is. Í tilefni af 100 ára afmæli…
-

Bréf frá Halldóri Laxness í maí 1919
Þann 20. maí 1919, þegar Halldór Laxness var nýorðinn 17 ára, sendi hann móður sinni bréf frá Reykjavík. Þar segir hann m.a. frá því að hann hafi verið í félagsskap skáldanna Stefáns frá Hvítadal, Jakobs Thorarensen, Einar Sæmundssonar, Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi og Guðmundar G. Hagalín. Hann biður móður sína að lofa þeim síðastnefnda að…
-

Prentlist Sigmundar Guðmundssonar
Sigmundur Guðmundsson prentlistamaður var fæddur 18. október 1853 í Ólafsdal í Dalasýslu. Sigmundur átti hann mikinn þátt í þeim endurbótum sem urðu á prentiðn hér á landi fyrir aldamótin 1900. Hann var talinn listfengasti og smekkvísasti prentari landsins á þeim tíma. Árið 1871 hóf Sigmundur prentnám hjá Einari Þórðarsyni prentara í Landsprentsmiðjunni í Reykjavík. Haustið…
-

Jón Thoroddsen Piltur og stúlka
Dálítil frásaga Piltur og stúlka er álitin vera fyrsta íslenska skáldsagan og Jón Thoroddsen (1818-1868) faðir formsins á íslensku. Sagan segir af ungu pari, Indriða og Sigríði, úr sveit á Austurlandi, þar sem sveitalífið er indælt og fábrotið. Móðir Sigríðar er mótfallin ráðahagnum og rekur fleyg á milli þeirra. Þau flytja bæði í drungann og…
-
„Hlíðin mín fríða“ – Sigurður Skagfield
Sigurður Skagfield tenór fæddist að Litlu-Seylu í Skagafjarðarsýslu 29. júní 1895. Sigurður stundaði söngnám í Kaupmannahöfn og einnig í Dresden og víðar í Þýskalandi. Hann fór söngför um Norðurlönd og var um skeið söngvari við óperuhúsið í Oldenburg. Sigurður dvaldist nokkur ár í Bandaríkjunum og hélt þar söngskemmtanir við góðan orðstír. Hann hélt einnig söngskemmtanir…
-
Tuksiutit sabbatit ulloinnut napertorsaket
Egill Þórhallason (1734-1789) var trúboði, prestur og aðstoðarprófastur í Grænlandi á árunum 1765-1775. Vísitasíubækur Egils frá Grænlandi eru merkilegar heimildir um Grænland og Grænlendinga 18. aldar. Eftir veru sína þar flutti hann aftur til Danmerkur þar sem hann hafði lokið námi og gegndi þar síðan prests- og prófastsstörfum til æviloka. Egill skrifaði um grænlensk málefni…
-
Eru þetta okkar jól? Ávarp Rauðsokka 1974
Á Þorláksmessu árið 1974 fóru rauðsokkur um miðbæinn, dreifðu ávarpi, hengdu örþreytta tuskuhúsmóður upp í jólatré í Austurstræti og spurðu konur sem voru í innkaupaleiðangri: Eru þetta okkar jól? Rauðsokkur stefndu að því að vekja með öllum ráðum athygli á bæði augljósu og földu misrétti kynjanna, svo og kúgun sem ætti sér rætur í þjóðfélagsgerð og…