Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-
Bókband eftir Ársæl Árnason í Bókbindarasafni
Í Bókbindarasafni sem Félag bókagerðarmanna (nú Grafía) afhenti Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni til varðveislu árið 2012 er margt merkra gripa, þ. á m. verðlaunabók Ársæls Árnasonar frá Iðnsýningunni 1911. Ársæll Árnason (1886-1961) hóf bókbandsnám hjá Guðmundi Gamalíelssyni í Reykjavík 1895. Ársæll fékk iðnnemastyrk úr landssjóði til framhaldsnáms við Berliner Buchbinder-Fachschule. Í Þýskalandi tók Ársæll þátt…
-
Vísnakver Fornólfs
Vísnakver Fornólfs kom út 1923. Bókin er gott dæmi um aukið myndmál í útgáfu eftir að prentmyndagerð varð möguleg hér á landi eftir 1919 og eru 20 eintök bókarinnar prentuð á teiknipappír með handlituðum teikningum. Höfundur Vísnakvers Fornólfs er Jón Þorkelsson forni [1859−1924] sem var kunnur af störfum sínum sem landsskjalavörður og þjóðskjalavörður um langt…
-
Mínerva – sveitablað til skemmtunar og fróðleiks. Guðrún Lárusdóttir gaf út og ritstýrði.
Guðrún Lárusdóttir (8. janúar 1880 – 20. ágúst 1938) var fædd á Valþjófsstað í Fljótsdal. Hún ólst síðar upp á Kollaleiru í Reyðarfirði og frá 19 ára aldri bjó hún í Reykjavík. Guðrún var rithöfundur, alþingismaður, bæjarfulltrúi, fátækrafulltrúi og virk í mörgum félögum. Hún giftist Sigurbirni Ástvaldi Gíslasyni og saman áttu þau tíu börn. Þau…
-
Íslandsvísur – Jón Trausti og Þórarinn B. Þorláksson
Árið 1903 kom út bókin Íslandsvísur sem Jón Trausti [Guðmundur Magnússon 1873–1918] og Þórarinn B. Þorláksson [1867–1924] gerðu í sameiningu. Bókin er gott dæmi um vel heppnað samstarf höfunda texta og mynda – teikningarnar eru tvinnaðar saman við textann, allt útlit og heildarmynd hugsuð sem eitt verk og markar bókin tímamót í því tilliti. Bókin…
-
Kongeloven
Fyrsta ritið sem skráð var í fyrstu aðfangabók safnsins (1820), Fortegnelse de til det Islandske Stifts Bibliotek indkomme Böger, (Lbs 104 fol) var Lex Regia Det er: Den Souveraine Konge=Lov SAT OG GIVEN AF DEN Stoormegtigste Höjbaarne FYRSTE OG HERRE Herr FRIDERICH Den TREDJE, AF GUDS NAADE, KONGE TIL DANMARK OG NORGE, DE WENDERS OG…
-
Registur yfir Íslands stiftisbókasafn
Íslands Stiftisbókasafn var stofnað árið 1818. Fyrsta registur yfir safnkost þess var prentað á kostnað Hins íslenzka bókmenntafélags í Kaupmannahöfn árið 1828. Þá voru þá í safninu samtals 3.777 bindi. Aðalhöfundur þess var Peder Fieldsted Hoppe stiftamtmaður. Hoppe verður að teljast fyrsti bókavörður Landsbókasafnsins, því auk þess að semja bókaskrána var hann formaður stjórnar safnsins,…
-
Ferðaorgel Jóns Leifs
Jón Leifs (1899-1968) var 17 ára þegar hann hélt til Leipzig í Þýskalandi til að verða tónskáld og hljómsveitarstjóri. Á árunum 1925-1928 og aftur á fjórða áratugnum ferðaðist Jón um Ísland til að skrifa niður og hljóðrita íslensk þjóðlög og eru þessar hljóðritanir afar merkileg heimild. Þetta ferða-harmóníum var smíðað um 1900. Jón keypti hljóðfærið…
-
Lýðveldishátíðarpóstkort Smekkleysu
Lýðveldishátíðin 1994 markaði á vissan hátt kaflaskil í útgáfusögu Smekkleysu. Bragi Ólafsson fékk Eduardo Perez Baca til að taka ljósmyndir í póstkortaseríu í tilefni af lýðveldisafmælinu. Þeir Óttarr Proppé og S. Björn Blöndal úr hljómsveitinni Ham voru valdir sem fyrirsætur ásamt Möggu Stínu úr Risaeðlunni. Úr varð sextán korta sería sem vakti verðskuldaða athygli en…
-
„Nóttin var sú ágæt ein“ – Þuríður Pálsdóttir
Þuríður Pálsdóttir fæddist í Reykjavík 1927, dóttir Kristínar Norðmann píanókennara og Páls Ísólfssonar tónskálds og organista. Þuríður hefur verið einsöngvari frá 1948. Hún stundaði söng- og tónlistarnám á Ítalíu á sjötta áratugnum og lauk tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1967 og stundaði einnig nám í píanóleik og óperuleik. Þuríður var í hópi frumkvöðla í söngkvennastétt…
-
Marteinn Lúther – CATECHISMVS
Marteinn Lúther – CATECHISMVS Edur. Ehristelegur[!] Lærdomur, Fyrer einfallda Presta og Predikara, Hwsbændur og Vngmenne. Þann 31. október eru 500 ár liðin frá því Marteinn Lúther birti 95 mótmælagreinar sínar sem ollu víðtækum breytingum í málefnum kristinnar trúar, kirkju, samfélags og menningar í norðanverðri Evrópu. Catechismus var skrifað af Marteini Lúther og fyrst gefið út…
-
Dægradvöl
Sjálfsævisöguna Dægradvöl skrifaði Benedikt Gröndal í lok 19. aldar, á sínum efri árum. Í henni rifjar hann upp viðburðaríka ævi sína og fjallar m.a. um samferðafólk sitt af miklu hispursleysi. Benedikt var fæddur 6. október 1826 og lést 2. ágúst 1907. Í handritasafni eru varðveitt fjölmörg handrit með hendi Benedikts, t.d. handrit að kvæðum, þýðingum…
-
Bréf Fr. Schlichtegrolls um bókasafn og vísindafélag á Íslandi 1817
200 ár eru nú frá því fyrst var viðruð hugmynd um stofnun almenns bókasafns á Íslandi. Varðveist hefur bréf frá Friedrich Schlichtegroll, aðalritara konunglegu vísindaakademíunnar í München, dagsett 28. ágúst 1817, til dr. Münters Sjálandsbiskups. Í bréfinu, sem er á þýsku, hvetur Schlichtegroll til þess að stofnað verði félag í Kaupmannahöfn og Reykjavík til eflingar…