Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-

Anna Sigurðardóttir – heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Íslands
Kvennasögusafn Íslands var stofnað á nýársdag 1975 á heimili Önnu Sigurðardóttur (5. desember 1908 – janúar 1996) við Hjarðarhaga 26. Hún var fyrsta forstöðukona safnsins í um 20 ár og stóð að stofnun þess ásamt Else Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldursdóttur, bókasafnsfræðingum. Anna byrjaði að safna heimildum um sögu kvenna árið 1946 en hún var…
-

Vinna kvenna – Ingibjörg Guðlaugsdóttir
50 ára afmælissýning Kvennasögusafns opnaði í Þjóðarbókhlöðunni þann 17. október 2025. Á sýningunni eru teknar fram 18 konur úr safnkosti Kvennasögusafns sem unnu margvísleg störf á 20. öldinni. Ein þeirra var Ingibjörg Guðlaugsdóttir (1887–1971). Ingibjörg fæddist að Sogni í Kjós. Hún var vinnukona í heimasveit sinni sem ung kona en rúmlega þrítug réðist hún í…
-

Úrklippubækur framkvæmdanefndar um Kvennafrí
Kjörgripir októbermánaðar eru tvær úrklippubækur sem framkvæmdanefnd um Kvennafrí tók saman og gaf Kvennasögusafni ásamt öllu skjalasafni sínu. Anna Sigurðardóttir, forstöðukona Kvennasögusafns, tók við skjalasafni framkvæmdanefndarinnar á Hótel Sögu 28. mars 1976. Skjalasafnið hefur verið varðveitt á Kvennasögusafni síðan. Í október verður opnuð sýning í tilefni af alþjóðaári kvenna og því að 50 ár eru…
-

Saumastofan − leikmyndarmódel
Kjörgripur mánaðarins er leikmyndarmódel hannað af Jóni Þórissyni fyrir uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur á Saumastofunni eftir Kjartan Ragnarsson. Saumastofan var frumsýnd þann 28. október 1975, fjórum dögum eftir fyrsta Kvennafrídaginn þegar konur lögðu niður störf og efndu til stærstu mótmæla Íslandssögunnar. Söngleikurinn fjallar um heldur óvenjulegan dag í lífi saumakvenna á saumastofunni Saumur. Sigga, elsta saumakonan,…
-

Norðanvindur
Bókin Norðanvindur er kjörgripur safnsins í ágústmánuði í tilefni af norrænu bókbandssýningunni Norræn náttúra sem lýkur í lok mánaðarins. Sýningin Norrænt bókband er samstarfsverkefni norrænna listbókbindara. Árið 2009 var sýningin í fyrsta sinn í höndum Íslendinga. Hún var sett upp í Þjóðmenningarhúsinu en ferðaðist svo um öll Norðurlöndin. JAM-hópurinn sem er félagssamtök íslenskra bókbindara tók…
-

Læðurnar eftir Walentin Chorell í þýðingu Vigdísar Finnbogadóttur – leikskrá Þjóðleikhússins 1964
Í vor undirrituðu Leikminjasafnið og Þjóðleikhúsið samstarfssamning um birtingu á leikskrám leikhússins á vefnum timarit.is. Tilefnið er 75 ár afmæli Þjóðleikhússins sem opnaði dyr sínar sumardaginn fyrsta árið 1950. Nú hafa leikskrár frá átján fyrstu leikárunum ratað á vefinn. Markmiðið er að birta leikskrár frá fyrstu fimmtíu leikárunum á þessu ári. Kjörgripur mánaðarins er leikskrár…
-

19. júní, ársrit Kvenréttindafélags Íslands 1975
Kjörgripur júnímánaðar er 25. árgangur 19. júní, ársrits Kvenréttindafélags Íslands, sem var árið 1975 helgað kvennaárinu. Þar er m.a. greint frá ráðstefnu að Hótel Lotleiðum 20.-21. Júní þar sem flutt voru erindi um jafnréttis- þróunar og friðarmál og unnið í starfshópum. Elfa Björk Gunnarsdóttir skrifar um það hvernig bókasöfn eru að breytast í menningarmiðstöðvar. Valborg…
-

Júlíana Jónsdóttir – Stúlka
Kjörgripur safnsins í maímánuði er fyrsta ljóðabók íslenskrar konu, Stúlka, sem höfundurinn, Júlíana Jónsdóttir (1838–1917), gaf út á eigin kostnað árið 1876. Júlíana fæddist á Búrfelli í Hálsasveit í Borgarfirði, en ólst upp á Rauðsgili í Reykholtsdal hjá móðurafa sínum og konu hans. Hún var í vinnumennsku í Akureyjum á Breiðafirði 1860–1874. Þaðan fluttist Júlíana…
-

Finnska söguljóðið Kalevala innbundið af Unni Stefánsdóttur
Systurnar Unnur (1912-2004) og Bentína (1903-1965) Stefánsdætur settu upp bókbandsverkstæði í Grjótagötu 4 árið 1952. Þær urðu fljótlega mjög virtar meðal bókasafnara, enda komu margar dýrmætar bækur til þeirra til viðgerðar og bands. Unnur sá um viðgerðir og gyllingu og Bentína sá að mestu um bókbandið. Fram til 1960 höfðu þær ekki merkt verk sín,…
-

“Elsku hjartað mitt!” – Viðamesta safn ástarbréfa Kvennasögusafns
Á þriðja hundrað sendibréfa gengu á milli Guðrúnar Lárusdóttur og Sigurbjarnar Ástvalds Gíslasonar snemma á 20. öld. Bréfaskipti þeirra, eins og þau eru varðveitt í safninu, hefjast með bréfi frá henni 28. febrúar 1900 og þau byrja á að ávarpa hvort annað sem „kæra systir“ og „kæri bróðir“. Þau ræða mikið um trúmál enda var…
-

Dagbækur Maríu Skúladóttur Thoroddsen
Dagbækur og minnisbækur Maríu Skúladóttur Thoroddsen (1906–1976) frá þriðja áratug tuttugustu aldar eru kjörgripir safnsins í febrúar. Þær lýsa hugarheimi og tilfinningalífi Reykjavíkurstúlku þess tíma. Dagbækur Maríu frá árunum 1920–1922 lýsa skólagöngu hennar og hversdeginum, tilhugalífi og skólaleiða, hverja hún hitti, hvað var í matinn og hvenær hún fór í bað. Þær innihalda dönskuslettur, enskuslettur…
-

Kvennasögusafn – stofnskrá
Kvennasögusafn var stofnað 1. janúar 1975 af þremur konum: Önnu Sigurðardóttur, Elsu Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldursdóttur. Það var stofnað á heimili Önnu, á fjórðu hæð í blokk á Hjarðarhaga 26 í Reykjavík og starfaði hún þar sem forstöðukona Kvennasögusafns í 20 ár. Kvennasögusafn spratt upp sem andsvar við hefðbundinni söguskoðun, sem lagði mesta áherslu á…