-

Þórdís Gísladóttir hlýtur Maístjörnuna 2024
Ljóðabókaverðlaunin Maístjarnan voru afhent í Þjóðarbókhlöðunni miðvikudaginn 14. maí. Rithöfundasamband Íslands stendur að verðlaununum ásamt Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Maístjörnuna fyrir ljóðabók ársins 2024 hlýtur Þórdís Gísladóttir fyrir ljóðabókina Aðlögun. Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir: „Í Aðlögun Þórdísar Gísladóttur er atferli nútímamannsins skoðað frá ýmsum sjónarhornum bæði af kímni og alvöru, í fortíð og…
-

Fjögur handrit úr safni Landsbókasafns Íslands til sýnis í Eddu
Handritasýningin Heimur í orðum var opnuð í Eddu í nóvember á síðasta ári. Reglulega þarf að skipta út handritum á sýningunni til þess að tryggja sem best varðveislu þeirra. Handritasafn Landsbókasafns er samstarfsaðili Árnastofnunar og lánar handrit af og til á sýninguna. Nú eru fjögur handrit úr eigu handritasafns á sýningunni og hægt að skoða…
-

Tilnefningar til ljóðaverðlaunanna Maístjörnunnar
Tilnefningar til ljóðaverðlaunanna Maístjörnunnar voru kynntar í Gunnarshúsi miðvikudaginn 30. apríl 2025. Allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2024, alls 62, sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns voru gjaldgengar. Tilnefndar bækur eru, í stafrófsröð: Aðlögun – Þórdís Gísladóttir. Útgefandi: Benedikt. Ég hugsa mig – Anton Helgi Jónsson. Útgefandi: Mál og menning. Flaumgosar – Sigurbjörg Þrastardóttir. Útgefandi: JPV. Geðhrærivélar – Árni Jakob Larsson. Útgefandi: Sæmundur.…
-

Norræna bókbandssýningin Norræn náttúra 2025
Hópur norrænna bókbindara er hér á landi við opnun sýningarinnar Norræn náttúra sem er á vegum JAM hópsins – hóps íslenskra bókbindara og Félags norrænna bókbindara í samvinnu Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Tækniskólinn, Iðan fræðslusetur og Grafía – stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum koma einnig að sýningunni. Sýningin hefur verið opnuð í Þjóðarbókhlöðu og verður hún…
-

Leikskrár Þjóðleikhússins gerðar aðgengilegar á timarit.is
Í tilefni af 75 ára afmæli Þjóðleikhússins verða allar leikskrár Þjóðleikhússins frá upphafi gerðar aðgengilegar á timarit.is og vef Þjóðleikhússins. Landsbókasafn Íslands og Þjóðleikhúsið skrifuðu undir samstarfsamning um verkefnið á dögunum. Leikskrárnar verða skráðar, skannaðar og gerðar aðgengilegar á vefnum timarit.is. Þetta er stór áfangi í miðlun leiklistarsögunnar. Það er Sigríður Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Leikminjsasafni,…
-

Verkefnavaka gegn frestunaráráttu og ritstíflu
Verkefnavaka Háskóla Íslands gegn frestunaráráttu og ritstíflu verður haldin fimmtudaginn 6. mars n.k frá 17:00-22:00 í Þjóðarbókhlöðu. Í boði verður dagskrá fyrir alla nemendur Háskóla Íslands sem eru með verkefni í smíðum, smá eða stór, námskeiðsverkefni eða lokaverkefni. Á vökunni gefst gott tækifæri til þess að vinna í verkefnum eina kvöldstund í góðum félagsskap. Í…
-

Framtíðin er opin: Creative Commons afnotaleyfin og opinn aðgangur
Rannsóknarþjónusta Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns veitir doktorsnemum og rannsakendum hagnýt ráð á vikulegum veffyrirlestrum sem hefjast kl. 15 á miðvikudögum. Velkomin á vefnámskeiðið okkar um Creative Commons leyfi og opinn aðgang. Skoðað verður hvernig Creative Commons afnotaleyfi geta gert þér kleift að deila rannsóknum þínum víðar en ella. Hvort sem þú ert reyndur rannsakandi eða…
-

Örn Hrafnkelsson skipaður í embætti landsbókavarðar
Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra Logi Már Einarsson hefur skipað Örn Hrafnkelsson í embætti landsbókavarðar. Alls bárust 15 umsóknir um starfið sem auglýst var 11. október sl.Örn mun taka við starfi landsbókavarðar um næstu mánaðarmót samhliða því að Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir fer á eftirlaun eftir langan og farsælan feril við Landsbókasafn Íslands. Örn er með B.A.…
-

Dagur ástarbréfsins
Föstudaginn 14. febrúar verður Dagur ástarbréfsins haldinn í Þjóðarbókhlöðunni í boði Kvennasögusafns Landsbókasafns, í samstarfi við Nakano, Ástarsögufélagið, Ástarrannsóknarfélagið og fleiri. Haldin verða stutt erindi og opnuð örsýning á ástarbréfum úr safnkosti Kvennasögusafns og handritasafns Landsbókasafns og gestum boðið að koma með ástarbréf og skrifa ástarbréf. Dagskrá
-

Handrit úr safni Landsbókasafns Íslands til sýnis í Eddu – húsi íslenskunnar
Á sýningunni „Heimur í orðum“ í Eddu gefst fólki kostur á að skoða handrit frá ýmsum tímum. Reglulega er handritum skipt út, enda þola þau ekki að vera lengi í sýningarkössum. Eitt þeirra handrita sem nú er komið á sýninguna í Eddu er Lbs 1077 8vo, sem skrifað var árið 1783 af Ólafi Guðmundssyni á…
-

Opnun sýningarinnar Og kona hans
Sýningin Og kona hans var opnuð í anddyri Þjóðarbókhlöðu þann 10. febrúar. Þar eru ljósmyndir úr safni Kvennasögusafns ásamt textaverkum og úrklippum auk þess sem þar má hlýða á hljóðverkið Og kona hans eftir Eirík Stephensen og Margréti Kristínu Blöndal. Sýningin er á vegum Jafnréttisdaga í Háskóla Íslands og Kvennasögusafns og stendur til föstudags 14. febrúar. Hljóðverkið…
-

Og kona hans
ýningin Og kona hans er á vegum Jafnréttisdaga í Háskóla Íslands og Kvennasögusafns Íslands í Landsbókasafni Íslands – Háskólabóksafni. Sýningin verður opnuð í anddyri Þjóðarbókhlöðu kl. 17:00 þann 10. febrúar og stendur til föstudags 14. febrúar. Þar eru ljósmyndir úr safni Kvennasögusafns ásamt textaverkum og úrklippum. Einnig verður í hádeginu alla sýningardagana flutt hljóðverkið Og kona…