-

Víðsvegar heimsækir Þjóðarbókhlöðuna
Gígja Hólmgeirsdóttir, umsjónarmaður útvarpsþáttarins Víðsvegar á RÚV, heimsækir Þjóðarbókhlöðuna í nýjum þætti. Þar gengur hún um húsið og ræðir við landsbókavörð og sérfræðinga safnsins um starfsemina, safnkostinn og verkefni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Í þættinum ræðir Gígja meðal annars við landsbókavörð um hlutverk safnsins, starfsemi þess og þróun. Hún hittir einnig sérfræðinga á ólíkum sviðum…
-

READ JAPAN PROJECT 2025 færir Landsbókasafni bókagjöf
Þann 9. september fór fram afhending bókagjafar til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns á vegum READ JAPAN PROJECT 2025, verkefnis sem hefur það að markmiði að efla þekkingu og skilning á Japan. Alls bárust safninu 44 enskar bækur um japanskt samfélag, sögu, menningu, bókmenntir, tungumál, stjórnmál og alþjóðamál, auk manga-verka. Bækurnar munu styrkja safnkost safnsins og…
-

Natasha S. hlýtur Maístjörnuna fyrir Mara kemur í heimsókn
Skáldið Natasha S. hefur hlotið Maístjörnuna, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, fyrir ljóðabók sína Mara kemur í heimsókn. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í dag. Þetta er í tíunda sinn sem Maístjarnan er veitt, en hún hefur verið veitt árlega frá árinu 2017 og er eina viðurkenning sinnar tegundar…
-

180 ár frá stofnun handritasafns
Í dag eru liðin 180 ár frá því að handritasafni var komið á fót innan Landsbókasafns. Þennan dag árið 1846 veitti Kristján VIII Danakonungur (1786–1848) fjárheimild til að kaupa handritasafn Valgerðar Jónsdóttur biskupsekkju (1771–1856) til Landsbókasafns, alls 393 bindi. Frumstofn safnsins má rekja til fræðastarfa og handrita- og skjalasöfnunar sr. Jóns Halldórssonar í Hítardal (1665–1736),…
-

Bókaðu stund fyrir bók
Athygli er vakin á lestrarhvatningu Miðstöðvar íslenskra bókmennta „Bókaðu stund fyrir bók“ Markmiðið er að auka bóklestur fullorðinna um land allt og hvetja sem flesta til að upplifa og njóta þess sem lesturinn færir hverjum og einum. Á vefnum bokastund.is má finna skemmtilegar hugmyndir að því hvernig megi bæta bóklestri inn í daglegt líf, stofna bókaklúbba og…
-

Tæplega 100 handrit gefin handritasafni
Í byrjun janúar bárust handritasafni 94 handrit að gjöf. Þau hafa að geyma rímur, riddarasögur og síðari tíma fornaldarsögur, flest skrifuð á tímabilinu 1870–1910 eða þar um bil, en einnig nokkur eldri. Í safninu má sjá handbragð ýmissa þekktra skrifara á borð við Níels skálda Jónsson (1782–1857), Gísla Konráðsson (1787–1877) og Björn Sveinsson (1844-1932). Þá…
-

Sænska bóksögutímaritið Biblis frá upphafi
Hinn 13. október s.l. færði Steingrímur Jónsson Landsbókasafninu að gjöf sænska bóksögutímaritið Biblis sem komið hefur út síðan 1957. Það var Föreningen för bokhantverk sem gaf ársritið út í upphafi og allt til 1997. Þá tók Hollvinafélag Konunglega bókasafnsins í Svíþjóð – sem einnig heitir Biblis – við útgáfunni og gerði ritið að ársfjórðungsriti. Síðan…
-

Alþjóðleg vika opins aðgangs 2025 – Hver á þekkinguna?
Alþjóðleg vika opins aðgangs fer fram dagana 20.–26. október og ber yfirskriftina „Hver á þekkinguna?“ (e. Who Owns Our Knowledge?). Áhersla er lögð á eignarhald og aðgengi að þekkingu í nútímasamfélagi og hvernig samfélagið getur unnið saman að því að efla opinn aðgang að rannsóknarniðurstöðum. Í tilefni vikunnar býður Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og samstarfsaðilar upp á…
-

Við erum margar
VIÐ ERUM MARGAR er sýning á safnkosti Kvennasögusafns Íslands, sem haldin er í tilefni af 50 ára afmæli safnsins og verður opnuð kl. 15 föstudaginn 17. október. Kvennasögusafn var stofnað 1. janúar 1975 á heimili fyrstu forstöðukonu þess, Önnu Sigurðardóttur, í blokkaríbúð hennar við Hjarðarhaga. Stofnun safnsins var fyrsti íslenski viðburðurinn á alþjóðlegu kvennaári Sameinuðu…
-

Vefurinn um opinn aðgang er kominn með nýtt útlit
Vefurinn openaccess.is hefur verið uppfærður. Þar má finna nýjustu upplýsingar um stöðu opins aðgangs á Íslandi; leiðbeiningar fyrir fag- og fræðimenn, nemendur og almenning hvað varðar málefni opins aðgangs. Markmiðið með uppfærslunni er að gera upplýsingar um opinn aðgang aðgengilegri fyrir notendur og auka notagildi vefjarins. Vefurinn er unninn af starfsfólki Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns…
-

Hvað eru skylduskil?
Hefur þú eða einhver sem þú þekkir gefið út bók? Komið að útgáfu tímarits eða tónlistar? Kannski eigum við eintök af efninu en kannski ekki, og þá viljum við gjarnan fá eintök til varðveislu. Viltu vita meira? Þú getur lesið meira um skylduskil á vef safnsins en einnig er hægt að senda starfsfólki skylduskila tölvupóst – skylduskil (hjá) landsbokasafn.is. …
-

Gjaldskylda á bílastæðum við Þjóðarbókhlöðu
rá og með 18. ágúst síðastliðnum hófst gjaldtaka á bílastæðum við Þjóðarbókhlöðu, samhliða gjaldtöku á öllum öðrum stæðum á Háskólasvæðinu (sjá kort að neðan). Bílastæði við Birkimel eru undanskilin gjaldskyldu um sinn en þau eru í eigu Reykjavíkurborgar. Gjaldskylda er alla virka klukkan 7:00-17:00 og er tímagjaldið 230 krónur pr. klukkustund. Hægt er að greiða…