Landsbókasafn
EN – English

Þjónusta

Í bókasafninu er boðið upp á margvíslega þjónustu fyrir þann fjölbreytta hóp sem leitar til safnsins, bæði í Þjóðarbókhlöðu og á vef.

Sýni 34 af 66

Afgreiðslutími

Afgreiðslutími

Þjóðarbókhlaðan er að jafnaði opin virka daga frá kl. 9:00. Opnunartími er breytilegur um helgar, á sumrin, á prófatíma og á helgidögum.

Nánar: Afgreiðslutími

Flokkar: Nemendur HÍ

Bóka hópvinnuherbergi

Starfsmenn og nemendur íslenskra háskóla geta bókað hópvinnuherbergi á vef safnsins. Herbergin eru á 3. og 4. hæð Þjóðarbókhlöðu og taka 3-10 í sæti. Athugið að lágmarksstærð hópa sem geta bókað hópvinnuherbergi eru þrír einstaklingar.

Nánar: Bóka hópvinnuherbergi

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar

Bóka leiðsögn í heimildaleit

Sérfræðingar í upplýsingaþjónustu bjóða upp á stutta leiðsögn í heimildaleit. Hafið samband við upplýsingaþjónustu upplys (hjá) landsbokasafn.is , í síma 525 5685 eða lítið við í þjónustuborði á 2. hæð og fáið góð ráð við heimildaleitir.

Nánar: Bóka leiðsögn í heimildaleit

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar

Bókasafnsskírteini

Bókasafnsskírteini eru afgreidd í þjónustuborði á 2. hæð gegn framvísun skilríkja með mynd og kennitölu. Bókasafnsskírteini er innifalið í skólagjöldum nemenda við Háskóla Íslands, starfsmenn HÍ fá skírteini án endurgjalds, en aðrir greiða árgjald samkvæmt sjá gjaldskrá. Erlendir stúdentar í Háskóla Íslands þurfa að fylla út beiðni um bókasafnsskírteini.

Bókasafnsskírteini eru gefin út á einstakling og ber eigandi skírteinis fulla ábyrgð á þeim gögnum sem hann fær að láni. Glatist eða skemmist safnefni í vörslu lánþega þarf hann að greiða andvirði þess. Frekari upplýsingar utlan (hjá) landsbokasafn.is eða í síma 525 5681.

Nánar: Bókasafnsskírteini

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ

Endurnýjun lána

Hægt er að endurnýja lán allt að 6 sinnum ef annar lánþegi bíður ekki eftir efninu. Með innskráningu á lbs.leitir.is geta lánþegar endurnýjað lán sín. Sjá nánar í leiðarvísinum um leitir.is.

Nánar: Endurnýjun lána

Flokkar: Nemendur HÍ · Kennarar HÍ

Fjaraðgangur, VPN tengingar

Gagnasöfn í áskrift bókasafnsins og Háskóla Íslands eru aðeins aðgengileg á háskólanetinu. Ef tölva er ekki tengd háskólanetinu getur verið lokað á ýmsar tengingar og aðra möguleika. Starfsmenn og nemendur HÍ geta notað gögnin utan háskólanetsins með VPN-tengingu, sjá nánar.

Nánar: Fjaraðgangur, VPN tengingar

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ

Fjarnemar

Þeir sem skráðir eru í fjarnám við Háskóla Íslands hafa sömu réttindi og aðrir nemendur háskólans og leitast er við að veita þeim sambærilega þjónustu. Fjarnemar utan höfuðborgarsvæðisins geta fengið bækur sendar með pósti og greiðir safnið póstburðargjald aðra leiðina. Beiðnir um bókasendingar má senda á utlan (hjá) landsbokasafn.is  eða hafa samband við útlánadeild í síma 525 5681.

Nánar: Fjarnemar

Flokkar: Nemendur HÍ

Frátektir

Til þess að taka frá efni, þarf lánþegi að vera skráður inn á leitir.is (lbs.leitir.is) með lykilorði sínu. Sjá nánar í leiðarvísinum um leitir.is.

Nánar: Frátektir

Flokkar: Nemendur HÍ

Heimildaskráningarforritið EndNote

Háskóli Íslands er með EndNote-leyfi fyrir nemendur og starfsfólk. EndNote er forrit sem hjálpar til við að halda utan um heimildir, gera tilvísanir í texta og búa til heimildaskrár samkvæmt tilteknum staðli.
Hægt er að tengja forritið við Word og setja þar tilvísanir og heimildir sjálfkrafa inn í skjöl. EndNote sparar tíma og auðveldar heimildavinnu til muna. Forritið virkar bæði með Windows og Mac stýrikerfum, leiðbeiningar um uppsetningu.

Nánar: Heimildaskráningarforritið EndNote

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ

Innköllun efnis og sektir

Áminning um skiladag er að jafnaði send á netfang lánþega. Það er þó alfarið á ábyrgð lánþega að gögnum sé skilað á réttum tíma. Notendur geta endurnýjað lán sín sjálfir með því að vera skráður inn á lbs.leitir.is með lykilorði sínu. Ef gögnum er skilað eftir að útlánstími rennur út eru greiddar dagsektir samkvæmt gjaldskrá. Landsbókasafn – Háskólabókasafn sendir innköllunarbréf tvisvar sinnum eftir skiladag. Ef sú innköllun ber ekki árangur fara gögn í innheimtu hjá Motus.

Nánar: Innköllun efnis og sektir

Flokkar: Nemendur HÍ

Lagabókasafn í Lögbergi

Lagabókasafn Háskóla Íslands er á 3. hæð í Lögbergi, húsi Lagadeildar HÍ. Safnið er opið öllum, en útlán safngagna eru að mestu bundin við nemendur og kennara Lagadeildar. Afgreiðslutími getur breyst eftir árstíma.

Nánari upplýsingar: lagabokasafn (hjá) landsbokasafn.is eða í síma 525 4372.

Nánar: Lagabókasafn í Lögbergi

Flokkar: Nemendur HÍ · Kennarar HÍ

Leiðarvísar.is

Leiðarvísar um heimildir í einstökum fögum, heimildavinnu og aðrar hagnýtar leiðbeiningar.

Nánar: Leiðarvísar.is

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ

Leigja geymsluskáp

Í bókasafninu eru 144 skápar. Flestir skáparnir eru fyrir gesti sem nota safnið að staðaldri og vilja geyma gögn sín þar frá degi til dags yfir lengri tíma, allt upp í misseri. Lyklar eru afhentir í þjónustuborði á 2. hæð gegn framvísun bókasafnsskírteinis og greiðslu tryggingagjalds, sjá gjaldskrá. Tryggingagjald er endurgreitt þegar lykli er skilað.
Á 2. hæð eru skápar sem leigðir eru út í styttri tíma, 1-2 daga.
Frekari upplýsingar er að finna í bæklingi sem liggur frammi á safninu eða í tölvupósti utlan (hjá) landsbokasafn.is

Nánar: Leigja geymsluskáp

Flokkar: Nemendur HÍ

Leigja lesherbergi

Á 3. og 4. hæð eru 26 lesherbergi sem fyrst og fremst eru ætluð fræðimönnum, nemendum í framhaldsnámi á háskólastigi og öðrum sem vinna að ákveðnum verkefnum og þurfa að nota rit safnsins í því skyni. Hægt er að taka lesherbergin á leigu í mánuð í senn. Sækja skal um lesherbergi á sérstökum eyðublöðum (sjá reglur um úthlutun og sjá gjaldskrá).

Nánar: Leigja lesherbergi

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ

Ljósritun og skönnun

Á 1. hæð í Íslandssafni: Starfsfólk tekur ljósrit af efni safnsins fyrir notendur. Greitt er fyrir hvert blað (sjá gjaldskrá).
Á 2. hæð eru ljósritunarvélar sem einnig eru skannar. Notendur geta keypt inneign á þjónustuborði á 2. hæð til að geta notað vélarnar (sjá gjaldskrá).

Nánar: Ljósritun og skönnun

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ

Lykilorð, innskráning á lbs.leitir.is

Lánþegar velja sér lykilorð á lbs.leitir.is. Lykilorðið er notað til að skrá sig á „mínar síður“ á lbs.leitir.is. Þegar lánþegi hefur skráð sig getur hann endurnýjað efni, skoðað útlánasögu sína og tekið frá efni. Nánari leiðarbeinar í leiðarvísinum um leitir.is.

Nánar: Lykilorð, innskráning á lbs.leitir.is

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ

Námsbókasafn nemenda HÍ

Námsbókasafn er á 3. hæð í Þjóðarbókhlöðu. Bækur og annað efni úr námsbókasafni er ýmist hægt að nota á safninu eða fá að láni í einn til fjórtán daga. Nemendur eru hvattir til að kynna sér hvort kennarar einstakra námskeiða noti námsbókasafnið til að auðvelda aðgang að kennslubókum, ítarefni og greinum á leslista. Nánari upplýsingar um safnið og listar yfir fráteknar námsbækur fyrir hvert námskeið er í leiðarvísi námsbókasafnsins.
Allar frekari upplýsingar namsbokasafn (hjá) landsbokasafn.is eða í síma 525 5781.

Nánar: Námsbókasafn nemenda HÍ

Flokkar: Nemendur HÍ

Panta millisafnalán

Safnið útvegar notendum sínum bækur og tímaritsgreinar frá öðrum háskóla- og rannsóknarbókasöfnum. Leiðbeiningar um hvernig notendur geta pantað bækur og greinar eru í leiðarvísinum Millisafnalán. Safnið er einnig landsmiðstöð millisafnlána, er leiðbeinandi fyrir millisafnalán innlendra safna og eins það safn sem erlend bókasöfn leita til fyrir millisafnalán frá Íslandi. Nánari upplýsingar og fyrirspurnir millisafnalan (hjá) landsbokasafn.is eða í síma 525-5730/32.

Nánar: Panta millisafnalán

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ · Bókasöfn

Prentarar

Á 2. hæð í þjónustuborði. Greiða þarf fyrir hvert blað (sjá gjaldskrá).
Á 3. hæð: Fyrir nemendur og starfsmenn Háskóla Íslands. Svart/hvít prentun. Kostnaður við prentun dregst af prentkvóta í Uglu.

Nánar: Prentarar

Flokkar: Nemendur HÍ

Rafræn gagnasöfn

Bókasafnið veitir aðgang að fjölda rafrænna gagnasafna og tímarita. Aðgangur er í gegnum háskólanetið eða innskráningu.

Skoða gagnasöfnin

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ

Rafræn yfirlýsing um meðferð lokaverkefna, eyðublað

Auk eintaks af lokaverkefni skal nemandi skila í Skemmu rafrænni yfirlýsingu um það hvernig aðgangi að verkefni hans skuli háttað. Prentið eyðublaðið, fyllið það út, undirritið og skilið því á PDF-formi í Skemmuna sem sérskjali með ritgerðinni í skrefi 2. Þar er hægt að hlaða upp mörgum skrám en aðeins einni í einu.

Nánar: Rafræn yfirlýsing um meðferð lokaverkefna, eyðublað

Flokkar: Nemendur HÍ

Ritakaup, panta efni, tillögur

Safnið sér um innkaup á ritum fyrir ritakaupasjóð H.Í. Nemendur, fræðimenn og aðrir notendur safnsins geta einnig komið með uppástungur um ritakaup.

Nánar: Ritakaup, panta efni, tillögur

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ

Ritver og ritgerðaaðstoð

Ritver Háskóla Íslands veitir nemendum aðstoð við skrif, heimildanotkun og frágang ritgerða.

Nánar um ritver og aðstoð

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar

Salerni í Þjóðarbókhlöðu

Salerni eru hjá lyftum og við tröppurnar á öllum hæðum Þjóðarbókhlöðunnar.

Stærri aðgengileg salerni fyrir hjólastóla eru á 1. og 4. hæð, einnig við lyfturnar.

Aðgengi í Þjóðarbókhlöðu

Flokkar: Nemendur HÍ

Skemman, rafrænt varðveislusafn

Skemman er stafrænt varðveislusafn lokaverkefna nemenda á grunn- og meistarastigi. Markmiðið með Skemmu er m.a. að opna sem flestum aðgang að fræðilegu efni og eru nemendur hvattir til að hafa ritgerðir sínar opnar. Sumar deildir hafa sett reglur varðandi aðgang að lokaverkefnum og er nemendum bent á að kynna sér vel verklagsreglur eða aðrar leiðbeiningar um lokaverkefni í sinni deild.
Samkvæmt 54. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 skal nemandi sem hyggst útskrifast frá Háskóla Íslands skila inn rafrænu eintaki af lokaverkefni sínu í Skemmuna. Nánari upplýsingar og aðstoð skemman (hjá) landsbokasafn.is.

Nánar: Skemman, rafrænt varðveislusafn

Flokkar: Nemendur HÍ · Kennarar HÍ

Tímaritalisti safnsins

Heildarskrá rafrænna tímarita í áskrift. Auk þess er aðgangur að ýmsum tímaritum sem eru aðgengileg í opnum aðgangi. Bæði er hægt að leita að titlum tímarita og einstökum tímaritsgreinum.

Nánar: Tímaritalisti safnsins

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ

Turnitin

Hugbúnaðurinn Turnitin styður við endurgjöf kennara til nemenda varðandi fræðileg skrif, tilvitnanir og heimildanotkun. Til ársloka 2026 er í gildi samningur um notkun allra framhalds- og háskóla á Turnitin og hefur Lbs-Hbs umsjón með framkvæmd hans. Hilma Gunnarsdóttir (hilma.gunnarsdottir (hjá) landsbokasafn.is) er verkefnastjóri Turnitin og Sigurbjörg Jóhannesdóttir (sigurbjorg (hjá) hi.is) kennsluráðgjafi háskólakennslu hjá Kennslumiðstöð Háskóla Íslands, hefur umsjón með íslenska aðgangi Turnitin.

Nánar: Turnitin

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ

Tölvur

Á 1. hæð í lestrarsal Íslandssafns: Aðgangur að Interneti og ritvinnsluforritum
Á 2. hæð á móti þjónustuborði: Aðgangur að Interneti og ritvinnsluforritum. 
Á 3. hæð: Fyrir nemendur og starfsmenn Háskóla Íslands. 
Á 4. hæð: Fyrir nemendur og starfsmenn Háskóla Íslands.

Auk þess eru leitartölvur fyrir lbs.leitir.is á öllum hæðum.

Nánar: Tölvur

Flokkar: Nemendur HÍ

Upplýsingaþjónusta, heimildaleit

Sérfræðingar í upplýsingaþjónustu veita aðstoð við upplýsinga- og heimildaleit. Hafið samband við upplys (hjá) landsbokasafn.is, í síma 525 5685 eða lítið við í þjónustuborði á 2. hæð.

Nánar: Upplýsingaþjónusta, heimildaleit

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ

Útlán og skil

Allir einstaklingar 18 ára og eldri, með lögheimili á Íslandi og íslenska kennitölu, geta tekið bækur að láni hjá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.
Bækur og annað efni er lánað út í þjónustuborðum á 2. og 4. hæð. Á 2. hæð er einnig sjálfsafgreiðsluvél. Lánstími er yfirleitt 30 dagar. Sumt efni er lánað skemur, t.d. efni í námsbókasafni en það er staðsett er á 4. hæð. Kennarar við Háskóla Íslands geta beðið um að efni í námsbókasafni sé einungis til afnota á safninu eða lánað í 1 til 7 daga. Kvikmyndir eru lánaðar í 3 daga. Ef efni er ekki til í safninu er hægt að panta það frá öðru bókasafni í millisafnaláni gegn gjaldi. Nemendur og starfsmenn HÍ fá 50% afslátt af þessari þjónustu. Öllum gögnum í útláni skal skila í þjónustuborði á 2. hæð. Yfirlit yfir útlánaþjónustuna.

Nánar: Útlán og skil

Flokkar: Nemendur HÍ · Kennarar HÍ

Vinnuaðstaða

Lesrými og vinnuborð eru á öllum hæðum Þjóðarbókhlöðunnar og opin öllum gestum. Á prófatíma eru lessæti sérstaklega frátekin nemendum Háskóla Íslands. Rýmra er fyrir hádegi.

Hópar geta bókað hópvinnuherbergi og rætt saman án þess að trufla aðra.

Nánar: Vinnuaðstaða

Flokkar: Nemendur HÍ

Þráðlaust net

Þráðlausa netið LBS-HotSpot er í öllu húsinu og allir geta tengst því með eigin tæki.

Hafðu samband

Flokkar: Nemendur HÍ

Önnur bókasöfn Háskóla Íslands

Safnið starfrækir bókasafn fyrir lagadeild Háskóla Íslands á 3. hæð í Lögbergi. Á annarri hæð í Sögu er útibú fyrir Menntavísindasvið og Heilbrigðisvísindabókasafn Landspítala og Háskóla Íslands er í Eirbergi, Landspítala v/Hringbraut.

Nánar: Önnur bókasöfn Háskóla Íslands

Flokkar: Nemendur HÍ · Doktorsnemar · Kennarar HÍ