Heimskommúnisminn og Ísland (lokið)
Sýning í Þjóðarbókhlöðu

Sýning og fyrirlestrar í Þjóðarbókhlöðu föstudaginn 23. ágúst 16–18
Föstudaginn 23. ágúst 2013 kl. 16-18, verður opnuð í Þjóðarbókhlöðu sýningin Heimskommúnisminn og Ísland sem fjallar um hina alþjóðlegu kommúnistahreyfingu og starfsemi hennar á Íslandi. Evrópuþingið hefur lýst 23. ágúst Evrópudag minningarinnar um fórnarlömb stalínismans og nasismans en þennan dag árið 1939 gerðu Hitler og Stalín griðasáttmála sem hleypti af stað heimstyrjöldinni síðari. Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt (RNH) stendur að sýningunni í samstarfi við Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn.
Höfundur hennar er dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor. Sögumiðlun ehf sér um sýningarhönnun.
Sýningin stendur til 16. september 2013.
Sjá nánari upplýsingar á: http://www.rnh.is/
Mynd: Ungir kommúnistar á Siglufirði undir mynd af Lenín í september 1930.
Eldri sýningar og viðburðir
Allar sýningar
Einkaútgáfur, örforlög og annarskonar miðlun frá 1977 til samtímans
Sýning í Þjóðarbókhlöðu
Sjá nánar