Leitin að klaustrunum - Viðurkenning Hagþenkis 2017

Sýning í Þjóðarbókhlöðu

Viðurkenning Hagþenkis var veitt þann 28. febrúar í Þjóðarbókhlöðunni við hátíðlega athöfn en hana hlaut Steinunn Kristjánsdóttir fyrir ritið Leitin að klaustrunum – klausturhald á Íslandi í fimm aldir sem Sögufélag og Þjóðminjasafn Íslands gáfu út. Í ályktunarorðum viðurkenningaráðsins sagði um ritið: Umfangsmikil og vel útfærð rannsókn sem varpar nýju ljósi á sögu klausturhalds á Íslandi. Frásagnarstíll höfundar gefur verkinu aukið gildi. Sverrir Guðjónsson flutti tónlist við athöfnina. Af þessu tilefni hefur verið sett upp lítil sýning þar sem má sjá m.a. dagbækur Steinunnar, múrskeið og líkneski af heilagri Dóróteu sem fannst á klausturstæðinu í Viðey 1987. Sýningin stendur til 10. september.

Eldri sýningar og viðburðir

Allar sýningar
Plötusafn Sigurjóns Samúelssonar

Plötusafn Sigurjóns Samúelssonar

Sýning í Þjóðarbókhlöðu

Sjá nánar
„Vér heilsum glaðar framtíðinni“

„Vér heilsum glaðar framtíðinni“

Sýning í Þjóðarbókhlöðu

Sjá nánar
Þýðingar á íslenskum bókmenntum

Þýðingar á íslenskum bókmenntum

Sýning í Þjóðarbókhlöðu

Sjá nánar
Bókamessa í Prag

Bókamessa í Prag

Sýning í Þjóðarbókhlöðu

Sjá nánar

Netspjall_

Vinsamlegast kynntu þig með nafni og netfangi.

Hleður spjall...
Netspjall